| Grétar Magnússon

Nathan Eccleston lánaður

Nathan Eccleston hefur verið lánaður til Rochdale í einn mánuð.

Rochdale spila í League One sem telst vera þriðja efsta deild í Englandi og sitja þeir í 18 sæti með 13 stig.  Deildin telur 24 lið og má segja að félagið sé í fallbaráttu þegar þetta er skrifað.

Eccleston hefur áður verið lánaður til Charlton og Huddersfield en bæði þessi lið leika í sömu deild og eru í 1. og 2. sæti þar.

Eccleston komst í fréttirnar fyrr á tímabilinu þegar hann skrifaði á Twitter aðganginn sinn að hann efaðist um að 11. september árásirnar árið 2001 hefðu verið gerðar af hryðjuverkarmönnum.  Félagið hóf rannsókn á þessu máli og Nathan fjarlægði þessa færslu af vefnum, síðan þá hefur ekkert frést af málinu.

,,Hann er mjög góður maður, hann er með góðan sprengikraft, mikla hæfileika og hefur gaman af því að skora mörk," sagði stjóri Rochdale, Steve Eyre í tilefni af lánssamningnum.

Eccleston hefur tvisvar sinnum komið við sögu hjá aðalliði félagsins í Úrvalsdeildinni, í fyrra tók hann þátt í fimm leikjum í Evrópudeildinni og þar af byrjaði hann inná heima gegn Utrecht í leik sem endaði 0-0. Alls hefur hann spilað níu leiki með aðalliði Liverpool.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan