| Sf. Gutt
Robbie Fowler er nú orðinn framkvæmdastjóri í Tælandi. Hann fór þangað sem leikmaður en nú stjórnar hann liðinu sem hann gekk til liðs við.
Liðið sem hann leikur með og stjórnar nú líka heitir Muang Thong United. Næst á undan Tælandi hafði Robbie spilað um tíma í Ástralíu. Þegar hann hætti þar var reiknað með að hann myndi flytja heim til Englands og fara að vinna við þjálfun en hann hefur verið að mennta sig í þjálfunarfræðum. Hann lét þó slag standa þegar tilboð kom frá Tælandi.
Robbie hefur sagt að hann hafi hug á að starfa sem þjálfari á næstu árum og þarna er hann búinn að taka óvænt skref í þá átt. En hann hyggst leika knattspyrnu eins lengi og hann getur því ekkert veit hann skemmtilegra.
TIL BAKA
Robbie orðinn stjóri
Robbie Fowler er nú orðinn framkvæmdastjóri í Tælandi. Hann fór þangað sem leikmaður en nú stjórnar hann liðinu sem hann gekk til liðs við.Liðið sem hann leikur með og stjórnar nú líka heitir Muang Thong United. Næst á undan Tælandi hafði Robbie spilað um tíma í Ástralíu. Þegar hann hætti þar var reiknað með að hann myndi flytja heim til Englands og fara að vinna við þjálfun en hann hefur verið að mennta sig í þjálfunarfræðum. Hann lét þó slag standa þegar tilboð kom frá Tælandi.
Robbie hefur sagt að hann hafi hug á að starfa sem þjálfari á næstu árum og þarna er hann búinn að taka óvænt skref í þá átt. En hann hyggst leika knattspyrnu eins lengi og hann getur því ekkert veit hann skemmtilegra.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

