| Heimir Eyvindarson

Sjokk að koma til Liverpool

Jonjo Shelvey viðurkennir að það hafi verið dálítið sjokk að færa sig frá Charlton til Liverpool og því hafi verið rétt ákvörðun að fara á láni til Blackpool.

,,Ég fór frá því að vera stór fiskur í lítilli tjörn hjá Charlton, yfir í að vera lítill fiskur í ansi stórri tjörn hjá Liverpool", segir Shelvey í viðtali við Blackpool Gazette.

,,Mér gekk ekki vel hjá Liverpool og fékk heldur ekki mikið af tækifærum. Þess vegna er það mér mikils virði að komast til Blackpool þar sem ég fæ að spila reglulega. Mér fannst ég virkilega þurfa að sanna mig í leik Blackpool og Bristol City um síðustu helgi", en Shelvey þótti standa sig mjög vel í leiknum, sem var fyrsti leikur hans með Blackpool. Hann skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu og átti að auki stóran þátt í fyrsta marki Blackpool í leiknum.

,,Þetta var frábær dagur. Fjölskyldan var komin til að horfa á mig og mér gekk vel. Átti þátt í fyrsta markinu og skoraði svo úr aukaspyrnu."

Nú hlakkar Shelvey til næsta leiks með Blackpool, en hann er gegn West Ham.

,,Ég held með West Ham þannig að þetta verður skrýtið. Allir vinir mínir koma og vonandi náum við að vinna. Ég ólst upp í Romford og æfði með Charlton, en hélt með West Ham. Nú vona ég að við vinnum þá, jafnvel þótt pabbi muni sjálfsagt ekki tala við mig ef það gerist."


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan