| Sf. Gutt
Það segir sér sjálft að það styttist í að Jamie Carragher hætti knattspynuiðkun. Hann sjálfur er farinn að átta sig á því að það sé farið að styttast í glæsilegum ferli sínum. Hann segir að Kenny Dalglish og þjálfaralið Liverpool hafi mest um það að segja hvenær hann hætti. Hann hafði þetta að segja í viðtali í dag.
,,Spyrjiði Kenny. Hann velur liðið. Ég á von á því að þjálfaraliðið hafi mest um það að segja. Maður vill fá sem mest út úr ferli sínum og spila eins lengi og mögulegt er. Líklega kemur að því á næstu tólf til átján mánuðum. Kannski eru tvö ár í það. Ég ræð þessu ekki sjálfur. Fólkið í kringum mig, starfsliðið og framkvæmdastjórinn ákveða þetta."
Það hefur lengi verið talið að Jamie sé efni í þjálfara og síðar knattspyrnustjóra og ekki vantar áhuga hjá honum sjálfum á því að fara þá leið eftir að ferlinum lýkur. Hann staðfesti áhuga sinn í þessu viðtali og segist vera farinn að taka fyrstu skrefin í að læra þjálfun. Margir telja að Jamie muni einmitt fá starf við þjálfun hjá Liverpool þegar hann hættir sem leikmaður.
Jamie lék sinn fyrsta leik með Liverpol í janúar 1997. Hann er nú búinn að spila 676 leiki og er annar leikjahæsti leikmaður í sögu Liverpool. Það styttist í lok ferils þessa magnaða kappa en hann er ekki búinn að segja sitt síðasta orð inni á knattspyrnuvellinum. Hann átti til dæmis stórleik í vörninni þegar Liverpool vann Everton á Goodison Park um síðustu helgi.
TIL BAKA
Það styttist í lok ferils Jamie
Það segir sér sjálft að það styttist í að Jamie Carragher hætti knattspynuiðkun. Hann sjálfur er farinn að átta sig á því að það sé farið að styttast í glæsilegum ferli sínum. Hann segir að Kenny Dalglish og þjálfaralið Liverpool hafi mest um það að segja hvenær hann hætti. Hann hafði þetta að segja í viðtali í dag. ,,Spyrjiði Kenny. Hann velur liðið. Ég á von á því að þjálfaraliðið hafi mest um það að segja. Maður vill fá sem mest út úr ferli sínum og spila eins lengi og mögulegt er. Líklega kemur að því á næstu tólf til átján mánuðum. Kannski eru tvö ár í það. Ég ræð þessu ekki sjálfur. Fólkið í kringum mig, starfsliðið og framkvæmdastjórinn ákveða þetta."
Það hefur lengi verið talið að Jamie sé efni í þjálfara og síðar knattspyrnustjóra og ekki vantar áhuga hjá honum sjálfum á því að fara þá leið eftir að ferlinum lýkur. Hann staðfesti áhuga sinn í þessu viðtali og segist vera farinn að taka fyrstu skrefin í að læra þjálfun. Margir telja að Jamie muni einmitt fá starf við þjálfun hjá Liverpool þegar hann hættir sem leikmaður.
Jamie lék sinn fyrsta leik með Liverpol í janúar 1997. Hann er nú búinn að spila 676 leiki og er annar leikjahæsti leikmaður í sögu Liverpool. Það styttist í lok ferils þessa magnaða kappa en hann er ekki búinn að segja sitt síðasta orð inni á knattspyrnuvellinum. Hann átti til dæmis stórleik í vörninni þegar Liverpool vann Everton á Goodison Park um síðustu helgi.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

