| Sf. Gutt

David Amoo lánaður

Útherjinn David Amoo var í dag lánaður til Bury. Lánstíminn er einn mánuður. Þetta er í þriðja sinn sem David er lánaður en á síðasta keppnistímabili lék hann sem lánsmaður hjá MK Dons og Hull City.

David hefur síðustu ár verið talinn einn efnilegasti ungliði Liverpool. Hann er eldfljótur kantmaður og töluverðar vonir hafa verið bundnar við hann. David hefur hingað til leikið einn leik með aðalliði Liverpool.
 




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan