| Sf. Gutt

Hvað sagði Luis við Sebastian?

Sebastian Coates ræddi að sjálfsögðu við landa sinn Luis Suarez áður en hann tók ákvörðun um að koma til Liverpool. En hvað fór þeim á milli? Luis sagðist svo frá um það í viðtali við Liverpoolfc.tv.

,,Ég sagði mest frá innviðum félagsins því hann vissi um allt annað. Liverpool er eitt af stærstu og mestu félögum í Evrópu og það þurfti ekki að segja honum það."

,,Hann er kominn í lið þar sem hann getur virkilega tekið framförum sem einstaklingur. Hann er ennþá mjög ungur og á margt eftir ólært en hér eru margir reyndir leikmenn sem hann getur lært af. Þetta veit hann og hann vill ólmur læra og um leið hjálpa liðinu eins mikið og hann getur."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan