| Sf. Gutt
Eins og allir vita þá var tilkynnt í gær að Joe Cole hefði verið lánaður til Frakklands. Hann mun spila með meistaraliði Lille á þessu keppnistímabili og því fær hann tækifæri í Meistaradeildinni.
Joe var hinn kátasti þegar hann kominn til Lille. ,,Ég hef alltaf haft áhuga á að spila í útlöndum. Ég elska knattspyrnu, bæði að horfa á hana og tala um hana. Þetta verður frábær reynsla og eins er það áskorun að spila með liði sem vill taka framförum."
Joe kom til Liverpool síðasta sumar á frjálsri sölu frá Chelsea og voru geysilega miklar væntingar bundnar við þennan snjalla leikmann. Hann náði sér þó aldrei á strik og svo virðist sem hnémeiðslin, sem hann varð fyrir um árið, hafi dregið kraft og snerpu úr honum. Joe hefur, hingað til, spilað 32 leiki með Liverpool og skorað þrjú mörk.
Ekki er gott að segja hvað úr verður með Joe eftir lánstímann en það eins og annað kemur í ljós þegar þar að kemur.
TIL BAKA
Joe Cole lánaður til Lille
Eins og allir vita þá var tilkynnt í gær að Joe Cole hefði verið lánaður til Frakklands. Hann mun spila með meistaraliði Lille á þessu keppnistímabili og því fær hann tækifæri í Meistaradeildinni. Joe var hinn kátasti þegar hann kominn til Lille. ,,Ég hef alltaf haft áhuga á að spila í útlöndum. Ég elska knattspyrnu, bæði að horfa á hana og tala um hana. Þetta verður frábær reynsla og eins er það áskorun að spila með liði sem vill taka framförum."
Joe kom til Liverpool síðasta sumar á frjálsri sölu frá Chelsea og voru geysilega miklar væntingar bundnar við þennan snjalla leikmann. Hann náði sér þó aldrei á strik og svo virðist sem hnémeiðslin, sem hann varð fyrir um árið, hafi dregið kraft og snerpu úr honum. Joe hefur, hingað til, spilað 32 leiki með Liverpool og skorað þrjú mörk.
Ekki er gott að segja hvað úr verður með Joe eftir lánstímann en það eins og annað kemur í ljós þegar þar að kemur.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

