| Sf. Gutt
Sóknarmaðurinn David Ngog var í kvöld seldur til Bolton Wanderes. Hann gerði þriggja ára samning við nýja félagið. Talið er að Liverpool hafi fengið fjórar milljónir sterlingspunda fyrir Frakkann. David Ngog var keyptur frá Paris St Germain sumarið 2008 fyrir eina og hálfa milljón punda.
Segja má að David hafi í heildina staðið sig vel hjá Liverpool. Hann tók jafnt og þétt framförum og á síðasta keppnistímabili var hann lengi vel markahæsti maður liðsins. Hann náði þó ekki að fylgja góðri byrjun eftir og honum gekk ekki vel á lokakaflanum. Alls skoraði hann átta mörk á leiktíðinni eins og þeirri á undan.
Það var sjaldan hægt að saka David um að leggja sig ekki fram en hann var þó ekki nógu góður til að spila með allra bestu liðunum. David skoraði þrjú mörk í æfingaleikjunum í sumar og var á bekknum í fyrsta deildarleiknum gegn Sunderland en hann komst svo ekki meir í liðshópinn.
David Ngog lék alls 94 leiki með Liverpool og skoraði nítján mörk. Við óskum honum góðs gengis hjá nýja liðinu og þökkum samveruna.
TIL BAKA
David Ngog seldur til Bolton
Sóknarmaðurinn David Ngog var í kvöld seldur til Bolton Wanderes. Hann gerði þriggja ára samning við nýja félagið. Talið er að Liverpool hafi fengið fjórar milljónir sterlingspunda fyrir Frakkann. David Ngog var keyptur frá Paris St Germain sumarið 2008 fyrir eina og hálfa milljón punda. Segja má að David hafi í heildina staðið sig vel hjá Liverpool. Hann tók jafnt og þétt framförum og á síðasta keppnistímabili var hann lengi vel markahæsti maður liðsins. Hann náði þó ekki að fylgja góðri byrjun eftir og honum gekk ekki vel á lokakaflanum. Alls skoraði hann átta mörk á leiktíðinni eins og þeirri á undan.
Það var sjaldan hægt að saka David um að leggja sig ekki fram en hann var þó ekki nógu góður til að spila með allra bestu liðunum. David skoraði þrjú mörk í æfingaleikjunum í sumar og var á bekknum í fyrsta deildarleiknum gegn Sunderland en hann komst svo ekki meir í liðshópinn.
David Ngog lék alls 94 leiki með Liverpool og skoraði nítján mörk. Við óskum honum góðs gengis hjá nýja liðinu og þökkum samveruna.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

