| Grétar Magnússon
Sebastian Coates segir að Luis Suarez hafi átt stóran þátt í því að hann ákvað að ganga til liðs við Liverpool. Úrúgvæinn ungi skrifaði undir langtíma samning eftir að gengið var frá kaupum á honum uppá 7 milljónir punda.
,,Luis hefur sagt mér mikið um Liverpool - en mest um stuðningsmennina frekar en allt annað," sagði Coates.
,,Hann sagði mér hversu ástríðufullir þeir eru varðandi félagið og hversu vel þeir styðja við leikmennina. Ég sá það sjálfur á laugardaginn þegar stuðningsmennirnir studdu virkilega vel við liðið gegn Bolton það var frábært að sjá."
,,Luis sagði mér einnig frá sögu félagsins og hefðum og nú er ég mjög ánægður og spenntur fyrir því að vera hér vegna þess að ég hef yfirgefið frábært félag heima, Nacional, og skrifað undir hjá öðru stórkostlegu félagi með frábæra sögu."
,,Að koma til svona félags og geta spilað með samlanda mínum er mér mikilvægt. Ég veit að Luis mun hjálpa mér að aðlagast, við þekkjum sömu siði og menningu og því mun nærvera hans hjálpa mér mikið."
Coates kemur til Anfield sem Suður-Ameríku meistari eins og Suarez og hann setur stefnuna á að vinna fleiri titla með Liverpool.
,,Maður vill alltaf vinna allt sem leikmaður en ég veit að ég þarf að taka eitt skref í einu á mínum ferli," bætti Coates við.
,,Ég verð að æfa vel og vera tilbúinn að mæta út á völl og spila. Ég vil vinna eins mikið og ég get í Liverpool treyjunni og þá á ég auðvitað við deildartitilinn og allar þær bikarkeppnir sem við tökum þátt í. Við verðum að setja markið hátt."
Coates fylgdist með 3-1 sigrinum á Bolton úr áhorfendastúkunum á Anfield og hann hlakkar mikið til að spila sinn fyrsta leik.
,,Jafnvel þó ég hafi ekki verið búinn að skrifa undir vildi ég hlaupa út á völl og spila," sagði hann. ,,Frá því að ég settist niður í sætið vildi ég frekar vera úti á vellinum. Ég veit að þegar tækifærið kemur að þá verð ég að spila eins og ég geri best. Ég er virkilega ánægður með að vera kominn hingað."
,,Þegar ég kom inná völlinn á laugardaginn tóku allir mér mjög vel og ég vona að ég geti endurgoldið þessu góða fólki í framtíðinni."
TIL BAKA
Suarez átti stóran þátt í komu Coates
Sebastian Coates segir að Luis Suarez hafi átt stóran þátt í því að hann ákvað að ganga til liðs við Liverpool. Úrúgvæinn ungi skrifaði undir langtíma samning eftir að gengið var frá kaupum á honum uppá 7 milljónir punda.,,Luis hefur sagt mér mikið um Liverpool - en mest um stuðningsmennina frekar en allt annað," sagði Coates.
,,Hann sagði mér hversu ástríðufullir þeir eru varðandi félagið og hversu vel þeir styðja við leikmennina. Ég sá það sjálfur á laugardaginn þegar stuðningsmennirnir studdu virkilega vel við liðið gegn Bolton það var frábært að sjá."
,,Luis sagði mér einnig frá sögu félagsins og hefðum og nú er ég mjög ánægður og spenntur fyrir því að vera hér vegna þess að ég hef yfirgefið frábært félag heima, Nacional, og skrifað undir hjá öðru stórkostlegu félagi með frábæra sögu."
,,Að koma til svona félags og geta spilað með samlanda mínum er mér mikilvægt. Ég veit að Luis mun hjálpa mér að aðlagast, við þekkjum sömu siði og menningu og því mun nærvera hans hjálpa mér mikið."
Coates kemur til Anfield sem Suður-Ameríku meistari eins og Suarez og hann setur stefnuna á að vinna fleiri titla með Liverpool.
,,Maður vill alltaf vinna allt sem leikmaður en ég veit að ég þarf að taka eitt skref í einu á mínum ferli," bætti Coates við.
,,Ég verð að æfa vel og vera tilbúinn að mæta út á völl og spila. Ég vil vinna eins mikið og ég get í Liverpool treyjunni og þá á ég auðvitað við deildartitilinn og allar þær bikarkeppnir sem við tökum þátt í. Við verðum að setja markið hátt."
Coates fylgdist með 3-1 sigrinum á Bolton úr áhorfendastúkunum á Anfield og hann hlakkar mikið til að spila sinn fyrsta leik.
,,Jafnvel þó ég hafi ekki verið búinn að skrifa undir vildi ég hlaupa út á völl og spila," sagði hann. ,,Frá því að ég settist niður í sætið vildi ég frekar vera úti á vellinum. Ég veit að þegar tækifærið kemur að þá verð ég að spila eins og ég geri best. Ég er virkilega ánægður með að vera kominn hingað."
,,Þegar ég kom inná völlinn á laugardaginn tóku allir mér mjög vel og ég vona að ég geti endurgoldið þessu góða fólki í framtíðinni."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

