| Heimir Eyvindarson

Allt það helsta um Sebastian Coates

Sebastian Coates er næst hæsti leikmaður sem leikið hefur fyrir Liverpool. Þetta er ein af mörgum staðreyndum um þennan nýjasta leikmann okkar.

Sebastian Coates er fæddur í Uruguay 7. október 1990. Hann á sama afmælisdag og sjálfur Sami Hyypiä.

Hann er 199 sm. á hæð og er þar með næst hæsti leikmaður sem leikið hefur fyrir Liverpool. Sá hæsti er Peter Crouch, en hann er 201 sm. á hæð.

Coates er kallaður "Luganito" í heimalandi sínu, sem þýðir litli Lugano, en þar er vísað til Diego Lugano fyrirliða landsliðs Uruguay.

Skýringin á nafngiftinni mun vera sú að margir horfa til Coates sem eftirmanns Lugano, sem einnig er miðvörður. Lugano hefur sjálfur sagt að hann reikni með því að Coates verði fyrirliði landsliðsins er fram líða stundir.

Kaupin á Coates þýða að í liði Liverpool eru nú tveir Copa America meistarar. Luis Suarez, sem valinn var besti leikmaður keppninnar og Coates, sem valinn var besti ungi leikmaður keppninnar.

Faðir Coates, Peter, er enskur. Coates segist hafa fengið einkatíma í ensku hjá honum að undanförnu.

Coates lék sinn fyrsta leik fyrir Nacional þegar hann var aðeins 17 ára gamall. Hann var valinn maður leiksins að leik loknum.

Síðan þá hefur hann verið fastur maður í liði Nacional. Hann hefur leikið 54 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 4 mörk.

Á síðustu leiktíð var hann bæði valinn leikmaður ársins og varnarmaður ársins í Uruguay.

Frammistaða hans í deildinni varð til þess að hann var valinn í landsliðshóp Uruguay fyrir Copa America. Hann lék sinn fyrsta landsleik gegn Eistum, einungis viku fyrir keppnina.

Sebastian Coates er sem stendur eini leikmaður landsliðs Uruguay sem aldrei hefur tapað landsleik. Hann hefur núna spilað fimm landsleiki.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan