| Sf. Gutt

Sebastian Coates orðinn leikmaður Liverpool

Sebastian Coates er orðinn leikmaður Liverpool. Þetta var staðfest á Liverpoolfc.tv fyrir stuttu.

Í tilkynningunni segir að búið sé að ganga frá kaupum á Sebastian Coates frá úrúgvæska liðinu Nacional. Sagt er að samningur hans við Liverpool sé til langs tíma en ekki er tekið fram um hversu langur samningurinn er. Eins er kaupverð ekki tekið fram.

Sebastian stóðst læknisskoðun og fékk atvinnuleyfi fyrr í dag. Þar með var ekkert í veginum fyrir því að hann gengi til liðs við Liverpool. Hann var viðstaddur leik Liverpool og Bolton um helgina. Hann er sjötti leikmaðurinn sem Liverpool kaupir í sumar.

Sebastian Coates er tvítugur miðvörður og þykir með þeim allra efnilegustu í heiminum. Hann var kjörinn Efnilegasti leikmaður Suður Ameríkukeppninnar í sumar en Úrúgvæ vann þá keppni eins og allir muna.

Við óskum Sebastian Coates góðs gengis í herbúðum Liverpool og vonum að hann eigi farsælan feril.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan