| Sf. Gutt

Spurning vikunnar

Þá er það spurning vikunnar. Það er komið að gamanmálum. Hver er fyndnasti félagi hvers? Margir telja Jose Reina vera þann fyndnasta í liði Liverpool. En hverjum skyldi honum finnast fyndinn? Pepe verður fyrir svörum um gamanmál. Hver annar?
 
             Mörgum finnst þú einn sá fyndnasti hjá Liverpool. En hver er fyndnasti herbergisfélagi þinn?

Er ég einn sá fyndnasti? Jæja, en það er reyndar fullt af fyndnum mönnum út um allt. Xavi hjá Barcelona virðist ekki mjög fyndinn en það er hann sannarlega. David Villa er líka mjög fyndinn og eins Sergi Barjuan sem var vinstri bakvörður hjá Barcelona þegar ég var þar. Það sama má segja um Capdevilla sem spilar með Villarreal. En hjá Liverpool held ég að Raul Meireles sé sá fyndnasti. 

Til fróðleiks: Jose Reina finnst Raul fyndinn en það fyndna er að Raul finnst að Jose sé fyndnasti leikmaður Liverpool. Það hlýtur því að vera glatt á hjalla þegar þeir félagar eru á svæðinu.

Spurning vikunnar birtist í LFC vikublaði Liverpool.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan