| Heimir Eyvindarson

Coates búinn í læknisskoðun

Sebastian Coates mun hafa staðist læknisskoðun hjá Liverpool í gær. Nú er einungis beðið eftir að hann fái atvinnuleyfi.

Í gær bárust fregnir af því að Atletico Madrid hefði blandað sér í baráttuna um þennan efnilega  miðvörð frá Uruguay, en því tilboði mun hafa verið hafnað. Coates er nú í Liverpool og mun hafa staðist læknisskoðun félagsins.

Það eina sem beðið er eftir er að hann fái atvinnuleyfi í Englandi, en það er stundum ekki sjálfgefið að ungir leikmenn úr öðrum heimsálfum fái það. Coates var hinsvegar valinn besti ungi leikmaður Copa America þannig að hann ætti að falla undir að geta talist sérstakt efni. Slíkir leikmenn fá undantekningarlítið atvinnuleyfi.

Enn hefur ekkert verið sagt frá Sebastian Coates á opinberri heimasíðu Liverpool, en það hlýtur að styttast í það.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan