| Heimir Eyvindarson
Emilio Insua skrifaði í gær undir fimm ára samning við portúgalska liðið Sporting frá Lissabon. Ekkert hefur enn verið gefið upp um hugsanlegt kaupverð.
Þrátt fyrir að Insua sé einungis 22. ára gamall hefur hann verið á mála hjá Liverpool í tæp fimm ár, eða frá því í nóvember 2006.
Emiliano lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í apríl 2007, gegn Portsmouth. Eftirminnilegasta leikjahrina þessa unga Argentínumanns í rauða búningnum kom tímabilið 2008-2009 þegar hann var fastur maður í stöðu vinstri bakvarðar vegna meiðsla Fabio Aurelio. Þá spilaði hann eins og hann hefði aldrei gert annað og vann sér sæti í landsliðshópi Argentinu. Hann hefur leikið fjóra landsleiki.
Emiliano var á leiðinni til Fiorentina fyrir ári en ekkert varð úr og hann fór sem lánsmaður til Galatasaray. Hann kom aftur til Liverpool í sumar og lék nokkra af æfingaleikjunum en hann var greinilega ekki í framtíðarplönum Liverpool. Það kemur þess vegna ekki á óvart að félagið hafi losað sig við hann. Emiliano lék 62 leiki með Liverpool og skoraði eitt mark.
Hann hafði þetta að segja við komuna til Sporting. ,,Ég er í skýjunum með að vera kominn til Sporting. Þetta er eitt stærsta félagið í Portúgal og er alltaf í baráttu um titla. Ég vona að ég geti hjálpað til við að vinna fleiri. Þá er félagið þekkt fyrir að ná fram því besta úr efnilegum leikmönnum."
Við óskum Emiliano Insua alls hins besta á portúgalskri grund.
TIL BAKA
Emiliano Insua til Sporting Lissabon
Emilio Insua skrifaði í gær undir fimm ára samning við portúgalska liðið Sporting frá Lissabon. Ekkert hefur enn verið gefið upp um hugsanlegt kaupverð.Þrátt fyrir að Insua sé einungis 22. ára gamall hefur hann verið á mála hjá Liverpool í tæp fimm ár, eða frá því í nóvember 2006.
Emiliano lék sinn fyrsta leik fyrir félagið í apríl 2007, gegn Portsmouth. Eftirminnilegasta leikjahrina þessa unga Argentínumanns í rauða búningnum kom tímabilið 2008-2009 þegar hann var fastur maður í stöðu vinstri bakvarðar vegna meiðsla Fabio Aurelio. Þá spilaði hann eins og hann hefði aldrei gert annað og vann sér sæti í landsliðshópi Argentinu. Hann hefur leikið fjóra landsleiki.
Emiliano var á leiðinni til Fiorentina fyrir ári en ekkert varð úr og hann fór sem lánsmaður til Galatasaray. Hann kom aftur til Liverpool í sumar og lék nokkra af æfingaleikjunum en hann var greinilega ekki í framtíðarplönum Liverpool. Það kemur þess vegna ekki á óvart að félagið hafi losað sig við hann. Emiliano lék 62 leiki með Liverpool og skoraði eitt mark.
Hann hafði þetta að segja við komuna til Sporting. ,,Ég er í skýjunum með að vera kominn til Sporting. Þetta er eitt stærsta félagið í Portúgal og er alltaf í baráttu um titla. Ég vona að ég geti hjálpað til við að vinna fleiri. Þá er félagið þekkt fyrir að ná fram því besta úr efnilegum leikmönnum."
Við óskum Emiliano Insua alls hins besta á portúgalskri grund.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

