| Sf. Gutt
Einu vonbrigðin í gærkvöldi í Exeter voru meiðslin hjá Raul Meireles. Hann verður líklega eitthvað frá eftir því sem Kenny Dalglish sagði eftir leikinn.
,,Hann meiddist á viðbeini en við vitum ekki hversu lengi hann verður frá. Ég gæti þó trúað að við verðum án hans í nokkrar vikur. Ég veit ekki læknisskilgreininguna á þessu. Hann meiddist bara á viðbeini þegar hann datt á það."
,,Þetta er svekkjandi. Það skiptir engu máli hvort hann var að spila vel eða ekki. Það er einfaldlega svekkjandi að meiðast svona. Okkur þykir þetta miður en ég er viss um að mestu vonbrigðin eru hjá Raul sjálfum."
Það kemur væntanlega fljótlega í ljós hversu lengi Raul verður frá en eftir umferðina í deildinni um helgina kemur landsleikjahlé. Ef heppnin er með þá verður Raul kannski tilbúinn þegar því lýkur.
TIL BAKA
Raul meiddur
Einu vonbrigðin í gærkvöldi í Exeter voru meiðslin hjá Raul Meireles. Hann verður líklega eitthvað frá eftir því sem Kenny Dalglish sagði eftir leikinn. ,,Hann meiddist á viðbeini en við vitum ekki hversu lengi hann verður frá. Ég gæti þó trúað að við verðum án hans í nokkrar vikur. Ég veit ekki læknisskilgreininguna á þessu. Hann meiddist bara á viðbeini þegar hann datt á það."
,,Þetta er svekkjandi. Það skiptir engu máli hvort hann var að spila vel eða ekki. Það er einfaldlega svekkjandi að meiðast svona. Okkur þykir þetta miður en ég er viss um að mestu vonbrigðin eru hjá Raul sjálfum."
Það kemur væntanlega fljótlega í ljós hversu lengi Raul verður frá en eftir umferðina í deildinni um helgina kemur landsleikjahlé. Ef heppnin er með þá verður Raul kannski tilbúinn þegar því lýkur.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

