| Heimir Eyvindarson

Coates flýgur til Englands á morgun

Traustar heimildir frá Uruguay herma að Sebastian Coates muni á morgun kveðja liðsfélaga sína í Nacional og fljúga til Englands til að ganga til liðs við Liverpool.

Hermt er að Coates eigi bókað flug frá Uruguay kl. 10.00 að staðartíma og muni því varla lenda í Liverpool fyrr en seint annað kvöld. Það verður þess vegna líkast til ekki fyrr en á föstudaginn sem hann fer í læknisskoðun og skrifar undir samning.

Uppfært: Á heimasíðu Nacional er staðfest að Coates sé á förum frá félaginu og muni undirgangast læknisskoðun hjá Liverpool í lok vikunnar.












TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan