| Heimir Eyvindarson

Coates segist vera á leið til Liverpool

Eins og greint var frá hér á síðunni í gær virðist Sebastian Coates, tvítugur miðvörður frá Uruguay vera á leið til Liverpool. Coates sjálfur vill ólmur koma.


Ýmsir traustir miðlar hafa sagt frá viðræðum milli Liverpool og Nacional, félags Coates, og svo virðist sem samkomulag sé í sjónmáli.

Í viðtali við blaðið Ovación gengur Coates svo langt að fullyrða að félögin hafi komist að samkomulagi um vistaskiptin og einungis eigi eftir að ganga frá formsatriðum.

Jafnvel var talið að Manchester City myndi blanda sér í baráttuna um þennan efnilega miðvörð, sem var valinn besti ungi leikmaður Copa America í sumar, en þegar þetta er ritað hafa engar frekari fregnir borist af áhuga City manna og þeir miðlar sem best hafa fylgst með gangi mála segja að verið sé að ganga frá samkomulagi milli Nacional og Liverpool, sem styður fullyrðingar Coates.

,,Ég er mjög spenntur fyrir því að fara til Liverpool. Félagið er eitt það þekktasta í heiminum og hefur mikla sögu. Auk þess er Luis Suarez þar fyrir og það mun hjálpa mér mikið", segir Coates.

,,Það er búið að samþykkja tilboð Liverpool og nú er bara eftir að ganga frá formsatriðum. Hugsanlega gerir Manchester City líka boð í mig og þá mun Nacional skoða það, en ég vil frekar fara til Liverpool."

,,Ég hef rætt félagaskiptin við Suarez og honum líst vel á að fá annan Úrugvæa í hópinn. Hann er líka búinn að ræða við Kenny Dalglish og einhverja fleiri hjá félaginu um mig. Það verður frábært að koma til Liverpool, þótt það verði óneitanlega dálítið kaldara heldur en hér", segir Coates að lokum.






TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan