| Sf. Gutt
Vefmiðlar á Englandi flytja látlaust fréttir af því að Joe Cole muni yfirgefa Liverpool og það fyrr en seinna. Talið er að hann fari í höfuðstaðinn. Þar munu Queens Park Rangers og jafnvel Tottenham Hotspur vera líkleg til að næla í enska landsliðsmanninn.
Joe Cole kom til Liverpool fyrir einu ári en hann hefur langt frá því staðið undir væntingum. Flest hefur gengið honum í móti frá því hann kom til Liverpool. Rautt spjald í fyrsta deildarleiknum var ekki góðs viti og svo tóku regluleg meiðsli við.
Joe mætti mjög sterkur til leiks á undirbúningstímabilinu. Hann æfði reyndar á fullu í allt sumar til að vera sem best undirbúinn þegar reglulegar æfingar hófust. Honum gekk samt ekki vel í þeim æfingaleikjum sem hann tók þátt í og hann var ekki valinn í leikmannahópa Liverpool fyrir þá tvo deildarleiki sem eru búnir. Brottför er því ekki ólíkleg.
TIL BAKA
Joe Cole á förum?
Vefmiðlar á Englandi flytja látlaust fréttir af því að Joe Cole muni yfirgefa Liverpool og það fyrr en seinna. Talið er að hann fari í höfuðstaðinn. Þar munu Queens Park Rangers og jafnvel Tottenham Hotspur vera líkleg til að næla í enska landsliðsmanninn. Joe Cole kom til Liverpool fyrir einu ári en hann hefur langt frá því staðið undir væntingum. Flest hefur gengið honum í móti frá því hann kom til Liverpool. Rautt spjald í fyrsta deildarleiknum var ekki góðs viti og svo tóku regluleg meiðsli við.
Joe mætti mjög sterkur til leiks á undirbúningstímabilinu. Hann æfði reyndar á fullu í allt sumar til að vera sem best undirbúinn þegar reglulegar æfingar hófust. Honum gekk samt ekki vel í þeim æfingaleikjum sem hann tók þátt í og hann var ekki valinn í leikmannahópa Liverpool fyrir þá tvo deildarleiki sem eru búnir. Brottför er því ekki ólíkleg.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

