| Sf. Gutt

Nýr varnarmaður á leiðinni?

Vefsíða BBC og fleiri traustir vefmiðlar greina frá því að Liverpool sé við að kaupa nýjan varnarmann. Sá kemur frá Úrúgvæ og heitir Sebastian Coates. Hann leikur með Nacional og samkvæmt frétt BBC eru forráðamenn Liverpool í viðræðum við félagið.

Haft er eftir talsmanni Nacional að Liverpool hafi gert félaginu mjög gott tilboð og allar líkur séu á að Sebastian fari til Liverpool. Fleiri félög á Englandi munu reyndar hafa áhuga á piltinum og hafa Arsenal og Manchester City verið nefnd í því sambandi. 

Sebastian er aðeins tvítugur að aldri en lék samt lykilhlutverk í liði Úrúgvæ sem vann Suður Ameríkukeppnina fyrr í sumar. Eftir keppnina var hann valinn Efnilegasti leikmaður keppninnar. Eins og allir muna þá var Luis Suarez kjörinn Besti leikmaður keppninnar og Sebastian mun lítast vel á að spila með sama liði og félagi hans.

Tveir miðverðir, Daniel Ayala og Sotirios Kyrgiakos, hafa yfirgefið Liverpool nýlega og því er þörf á að strykja miðvarðarhópinn ef svo má að orði komast.
 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan