| Sf. Gutt

Robbie farinn til Tælands

Í liðnum mánuði spurðist að Robbie Fowler væri hættur við að flytjast til Englands og búinn að ráða sig til Tælands. Þar í landi ætlar hann að spila með Muang Thong United. Hann gerði samning til eins árs.

Robbie lék síðast í Ástralíu en hugðist setjast að á Englandi og komast að hjá einhverju liði sem þjálfari. En Robbie hefur gaman af að spila knattspyrnu og stóðst ekki mátið þegar tilboð kom frá Tælandi. Hann á vafalaust eftir að bæta við markalista sinn þar áður en hann leggur skóna endanlega á hilluna.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan