| Heimir Eyvindarson

Tveir rauðir í landsliðshópnum

Andy Carroll og Stewart Downing eru báðir í landsliðshópi Englendinga fyrir vináttulandsleik gegn Hollendingum.

Fabio Capello tilkynnti í dag 25 manna hóp fyrir viðureignina við Hollendinga á Wembley næst komandi miðvikudag.

Andy Carroll og Stewart Downing eru einu rauðliðarnir sem hljóta náð fyrir augum Ítalans að þessu sinni.

Þess ber að geta að Glen Johnson meiddist lítillega í leiknum gegn Valencia í dag og er það væntanlega ástæða þess að hann er ekki valinn.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan