| Grétar Magnússon

Einn lánaður, annar seldur

Varnarmaðurinn Chris Mavinga hefur verið seldur til franska liðsins Rennes og markvörðurinn Peter Gulacsi hefur verið lánaður til Hull City.

Mavinga var í tvö ár hjá félaginu en hann kom sumarið 2009 frá Paris Saint-Germain, hann spilaði aldrei leik með aðalliði félagsins og var á láni hjá belgíska félaginu Genk allt síðasta tímabil.

Ungverski markvörðurinn Peter Gulacsi hefur svo verið lánaður til Hull City sem spila í næst efstu deild.  Gulacsi kom til félagsins árið 2008 skrifaði einnig undir framlengingu á samningi sínum við félagið, hann verður hjá Hull þar til 30. júní 2012.

Hann var á láni hjá Tranmere Rovers á síðasta tímabili en átti svo fast sæti á bekknum í síðustu mánuði nýliðins tímabils en hefur þó ekki spilað leik með aðalliðinu ennþá.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan