| Heimir Eyvindarson

Clarke: Joe Cole er í framtíðarplönum Liverpool

Steve Clarke segir að Joe Cole geti vel spilað mikilvægt hlutverk í Liverpool liðinu á næsta keppnistímabili. Hann sé ennþá góður leikmaður.

Talsvert hefur verið rætt um framtíð Joe Cole hjá Liverpool og hann hefur ítrekað verið orðaður við önnur félög í sumar. Fyrsta tímabil hans hjá Liverpool voru honum og stuðningsmönnum liðsins mikil vonbrigði, enda gekk hvorki né rak hjá honum, þá sjaldan hann fékk að spreyta sig.

Steve Clarke tjáir sig um framtíð Cole í viðtali við Liverpool Daily Post í dag og segist enn hafa trú að því að Cole geti sett mark sitt á Liverpool liðið.

,,Hann var ekki mikið með á síðari hluta síðustu leiktíðar, enda var liðið að spila ágætlega og erfitt að taka einhverja út úr því. En hann hefur lagt hart að sér á æfingum í sumar og hefur komið vel út úr leikjunum tveimur sem við höfum spilað til þessa."

,,Ég held að hann hafi haft gott af sumarfríinu. Hann virkar mjög líflegur á æfingum og leggur sig allan fram. Joe er toppleikmaður og getur alveg örugglega lagt sitt af mörkum til þess að Liverpool komist þangað sem við viljum allir koma því."

,,Joe er sami góði leikmaðurinn og ég þjálfaði hjá Chelsea. Hann er bara tveimur árum eldri og snjallari. Hann hefur alltaf haft hugarfarið í lagi. Hann mætir brosandi á æfingar og vinnur alltaf vel. Það hefur verið erfitt fyrir hann að komast ekki í liðið, en hann gefst ekki upp og þegar tækifærið kemur þá er það hans að grípa það."

,,Bestu leikmennirnir eru alltaf jákvæðir. Þeir sjá heildarmyndina og skija hvað er í gangi í kringum þá. Auðvitað vilja þeir allir spila alla leiki, en það á enginn einhvern heilagan rétt á því."




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan