| Heimir Eyvindarson

Glen Johnson meiddur

Liverpool Echo greinir frá því í dag að Glen Johnson eigi við smávægileg meiðsl að stríða og hafi þess vegna ekki farið með liðinu í Asíuferðina.

Glöggir stuðningsmenn Liverpool komu auga á Johnson á Formúlukeppninni í Englandi um helgina, eins og áður hefur komið fram. Nú segist Liverpool Echo hafa heimildir fyrir því að hann hafi meiðst lítillega í síðustu viku og verði þess vegna eftir á Melwood, meðan liðsfélagar hans halda í keppnisferð til Kína og Malasíu.

Enn hefur ekki verið gefið endanlega út hvaða leikmenn Dalglish tók með í Asíuferðina, en allavega er ljóst að auk Glen Johnson verða Steven Gerrard og Pepe Reina eftir í Liverpool, en þeir eiga enn við meiðsl að stríða.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan