| Heimir Eyvindarson

Jovanovic í viðræðum við Anderlecht

Milan Jovanovic, sem hefur fengið leyfi til að fara á frjálsri sölu frá Liverpool, á nú í viðræðum við belgíska félagið Anderlecht.

Jovanovic kom til Liverpool á frjálsri sölu síðast liðið sumar. Hann kom við sögu í 18 leikjum með félaginu og skoraði tvö mörk, gegn Northampton og Steaua Búkarest.

Eftir að Kenny Dalglish tók við Liverpool liðinu hefur lítið sést til þessa þrítuga Seba og fyrir stuttu tilkynnti félagið honum að honum væri frjálst að finna sér annað félag.

Jovanovic á nú í viðræðum við Anderlecht í Belgíu og segist vera spenntur fyrir því að fara þangað, en hann á ágætar minningar úr belgísku deildinni þar sem hann lék fjögur tímabil með Standard Liege og þótti standa sig vel. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan