| Sf. Gutt
Staðarblaðið Echo og fleiri áreiðanlegir fjölmiðlar greina frá því í dag að Aston Villa hafi hafnað formlegu tilboði Liverpool í Stewart Downing. Hermt er að tilboð Liverpool hafi verið fimmtán milljónir sterlingspunda. Blaðamaður Echo reiknar með því að Liverpool muni bjóða í enska landsliðsútherjann á nýjan leik og hækka tilboðið eitthvað. Stewart, sem hóf feril sinn hjá Middlesborough er sagður hafa mikinn hug á því að komast til Liverpool.
Eins gæti verið reynt að freista forráðamanna Aston Villa með því að bjóða þeim David Ngog í kaupbæti. Alex McLeish, nýr framkvæmdastjóri Aston Villa, sem tók við af Gerard Houllier á að hafa álit á franska stráknum. Það má því búast við að þetta mál sé ekki úr sögunni.
Rétt er að nefna það að vinstri bakvörðurinn Gael Clichy kemur ekki til Liverpool. Hann var núna á dögunum seldur frá Arsenal til Manchester City og ekki þarf að velta honum meira fyrir sér.
Að lokum skal lauslega greint frá brasilíska markmanninum Alexander Doni sem vildi ekki fara frá Roma til Liverpool um daginn vegna þess að kaupið þar væri ekki nógu gott. Litlu síðar var greint frá því að staðan væri breytt og hann vildi koma til Liverpool. Í dag lætur umboðsmaður Alexander hafa eftir sér að skjólstæðingur hans muni að öllum líkindum gera samning við Liverpool hvern næsta dag. Svoleiðis er það nú!
TIL BAKA
Tilboði í Stewart Downing hafnað
Staðarblaðið Echo og fleiri áreiðanlegir fjölmiðlar greina frá því í dag að Aston Villa hafi hafnað formlegu tilboði Liverpool í Stewart Downing. Hermt er að tilboð Liverpool hafi verið fimmtán milljónir sterlingspunda. Blaðamaður Echo reiknar með því að Liverpool muni bjóða í enska landsliðsútherjann á nýjan leik og hækka tilboðið eitthvað. Stewart, sem hóf feril sinn hjá Middlesborough er sagður hafa mikinn hug á því að komast til Liverpool.Eins gæti verið reynt að freista forráðamanna Aston Villa með því að bjóða þeim David Ngog í kaupbæti. Alex McLeish, nýr framkvæmdastjóri Aston Villa, sem tók við af Gerard Houllier á að hafa álit á franska stráknum. Það má því búast við að þetta mál sé ekki úr sögunni.
Rétt er að nefna það að vinstri bakvörðurinn Gael Clichy kemur ekki til Liverpool. Hann var núna á dögunum seldur frá Arsenal til Manchester City og ekki þarf að velta honum meira fyrir sér.
Að lokum skal lauslega greint frá brasilíska markmanninum Alexander Doni sem vildi ekki fara frá Roma til Liverpool um daginn vegna þess að kaupið þar væri ekki nógu gott. Litlu síðar var greint frá því að staðan væri breytt og hann vildi koma til Liverpool. Í dag lætur umboðsmaður Alexander hafa eftir sér að skjólstæðingur hans muni að öllum líkindum gera samning við Liverpool hvern næsta dag. Svoleiðis er það nú!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

