| Grétar Magnússon

Glen Johnson framlengdi samning sinn

Glen Johnson skrifaði undir framlengingu á samningi sínum við félagið í fyrr í dag.  Johnson kom frá Portsmouth árið 2009 og hefur spilað 70 leiki fyrir félagið.

Ekki er gefið upp um hversu langur nýi samningurinn er en Johnson er 26 ára og á líklega nokkur góð ár eftir í boltanum.

Damien Comolli sagði af þessu tilefni:  ,,Við erum virkilega ánægðir.  Við höfum verið að ræða við hann í nokkrar vikur, en það var auðvelt að komast að samkomulagi vegna þess að hann vildi vera áfram og við vildum halda honum."

,,Við erum ánægðir með að hann skuli vilja vera hér til langs tíma, og ég held að hann hafi verið ánægður með að við skyldum hafa komið til hans og beðið hann um að vera lengur."

,,Bestu árin hans eru eftir.  Mjög oft er það þannig með varnarmenn að þeir eru á sínum bestu árum milli 26 og 31 árs, hann er rétt að komast á það skeið núna þar sem þroski hans og leikskilningur verður sífellt betri.  Við erum glaðir með að hans framtíð sé hjá Liverpool."

Johnson kom, eins og áður sagði til félagsins árið 2009 og skoraði hann strax í sínum fyrsta leik á Anfield, í 4-0 sigri á Stoke City í ágúst.  Hann spilaði alls 35 leiki fyrir félagið á sínu fyrsta tímabili og svo sama leikjafjölda á því næsta er hann spilaði einnig stöku sinnum sem vinstri bakvörður undir stjórn Kenny Dalglish.

Comolli bætti við:  ,,Það er öllum ljóst sem horfa á hann að tæknilega er hann mjög góður.  Líkamlega er hann algjörlega frábær og ástand hans er allt mjög gott.  Undir lokin á síðastliðnu tímabili sýndi hann hversu fjölhæfur hann er með því að spila sem vinstri bakvörður og hann stóð sig frábærlega."

,,Það er frábært fyrir okkur að hafa hann í liðinu.  Eins og við höfum alltaf sagt þá viljum við ekki selja okkar bestu leikmenn og svo lengi sem að leikmenn eru ánægðir hér þá erum við ánægðir með að hafa þá hér til langs tíma."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan