| Sf. Gutt
Serbinn Milan Jovanovic hefur sagt opinberlega frá því að krafta hans sé ekki lengur óskað hjá Liverpool. Hann leitar nú að nýju félagi.
Milan hefur látið hafa það eftir sér í fjölmiðlum að hann hafi fengið þau skilaboð frá forráðamönnum Liverpool að honum sé frjálst að yfirgefa félagið. Hermt er að gríska félagið Olympiakos hafi áhuga á serbneska landsliðmanninum en hann segist ekki hafa fengið tilboð frá því.
Milan kom á frjálsri sölu síðasta sumar frá belgíska félaginu Standard Liege þar sem hann hafði getið sér gott orð. Rafael Benítez lagði grunninn að því að fá Milan til Liverpool og Roy Hodgson lagði blessuna sína yfir að hann myndi koma eftir að hann tók við.
Hvorki Roy eða Kenny Dalglish virtust hafa mikla trú á Milan. Hann fékk fá tækifæri og náði ekki að sýna að mikið væri spunnið í hann. Alls lék hann 18 leiki og skoraði tvívegis á síðasta keppnistímabili.
TIL BAKA
Milan má fara
Serbinn Milan Jovanovic hefur sagt opinberlega frá því að krafta hans sé ekki lengur óskað hjá Liverpool. Hann leitar nú að nýju félagi.Milan hefur látið hafa það eftir sér í fjölmiðlum að hann hafi fengið þau skilaboð frá forráðamönnum Liverpool að honum sé frjálst að yfirgefa félagið. Hermt er að gríska félagið Olympiakos hafi áhuga á serbneska landsliðmanninum en hann segist ekki hafa fengið tilboð frá því.
Milan kom á frjálsri sölu síðasta sumar frá belgíska félaginu Standard Liege þar sem hann hafði getið sér gott orð. Rafael Benítez lagði grunninn að því að fá Milan til Liverpool og Roy Hodgson lagði blessuna sína yfir að hann myndi koma eftir að hann tók við.
Hvorki Roy eða Kenny Dalglish virtust hafa mikla trú á Milan. Hann fékk fá tækifæri og náði ekki að sýna að mikið væri spunnið í hann. Alls lék hann 18 leiki og skoraði tvívegis á síðasta keppnistímabili.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

