| Sf. Gutt
Staðarblaðið Echo heldur því fram að Sotirios Kyrgiakos hafi fengið samning til eins árs við Liverpool. Gríski risinn kom til Liverpool sumarið 2009 og gerði þá tveggja ára samning sem endar núna í sumar.
Í Echo segir að í þeim samning hafi verið kveðið á um að ef Soto næði ákveðnum leikjafjölda á nýliðinni leiktíð gæti hann fengið samninginn framlengdan í eitt ár í viðbót. Soto lék 28 leiki og á sá fjöldi að hafa dugað til að fá framlengingu.
Líklega hefur Echo traustar heimildir fyrir þessari frétt sinni en ekkert hefur verið staðfest formlega á Liverpoolfc.tv um þetta mál. Verði Grikkinn áfram má segja að hann styrkji liðshópinn þótt reiknað hafi verið með því að hann færi núna í sumar. Hann stóð sig í heildina séð vel á síðustu sparktíð.
TIL BAKA
Fær Sotirios framlengingu?
Staðarblaðið Echo heldur því fram að Sotirios Kyrgiakos hafi fengið samning til eins árs við Liverpool. Gríski risinn kom til Liverpool sumarið 2009 og gerði þá tveggja ára samning sem endar núna í sumar. Í Echo segir að í þeim samning hafi verið kveðið á um að ef Soto næði ákveðnum leikjafjölda á nýliðinni leiktíð gæti hann fengið samninginn framlengdan í eitt ár í viðbót. Soto lék 28 leiki og á sá fjöldi að hafa dugað til að fá framlengingu.
Líklega hefur Echo traustar heimildir fyrir þessari frétt sinni en ekkert hefur verið staðfest formlega á Liverpoolfc.tv um þetta mál. Verði Grikkinn áfram má segja að hann styrkji liðshópinn þótt reiknað hafi verið með því að hann færi núna í sumar. Hann stóð sig í heildina séð vel á síðustu sparktíð.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

