| Sf. Gutt
Greint var frá því í dag, á Liverpoolfc.tv, að Jose Reina hafi farið í aðgerð vegna kviðslits. Aðgerðin mun hafa tekist vel og markmaðurinn á að vera tilbúinn í slaginn þegar undirbúningur fyrir nýtt keppnistímabil hefst í næsta mánuði. Vonandi gengur það eftir því miklu skiptir að Pepe verði búinn að ná sér góðum á tilsettum tíma.
Eitthvað á eftir að gerast í markmannamálum hjá Liverpool í sumar því vitað er að leitað hefur verið að reyndum markmanni til að hafa til vara. Brad Friedel markmaður Aston Villa kom til álita áður en hann ákvað að fara til Tottenham.
Brad Jones er auðvitað reyndur markmaður en það er talið líklegt að hann yfirgefi Liverpool í sumar. Ungverjinn Peter Gulacsi, sem er mjög efnilegur, hefur verið í láni af og til síðustu leiktíðir. Hann hefur því aflað sér reynslu en hann reiknar sjálfur með því að fara í lán áður en langt um líður. Fari hann og Brad líka vantar markmann með reynslu fari eitthvað úrskeiðis með Jose.
En þetta eins og annað sem óljóst er skýrist á næstu vikum.
TIL BAKA
Jose Reina fór í aðgerð
Greint var frá því í dag, á Liverpoolfc.tv, að Jose Reina hafi farið í aðgerð vegna kviðslits. Aðgerðin mun hafa tekist vel og markmaðurinn á að vera tilbúinn í slaginn þegar undirbúningur fyrir nýtt keppnistímabil hefst í næsta mánuði. Vonandi gengur það eftir því miklu skiptir að Pepe verði búinn að ná sér góðum á tilsettum tíma. Eitthvað á eftir að gerast í markmannamálum hjá Liverpool í sumar því vitað er að leitað hefur verið að reyndum markmanni til að hafa til vara. Brad Friedel markmaður Aston Villa kom til álita áður en hann ákvað að fara til Tottenham.
Brad Jones er auðvitað reyndur markmaður en það er talið líklegt að hann yfirgefi Liverpool í sumar. Ungverjinn Peter Gulacsi, sem er mjög efnilegur, hefur verið í láni af og til síðustu leiktíðir. Hann hefur því aflað sér reynslu en hann reiknar sjálfur með því að fara í lán áður en langt um líður. Fari hann og Brad líka vantar markmann með reynslu fari eitthvað úrskeiðis með Jose.
En þetta eins og annað sem óljóst er skýrist á næstu vikum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

