| Heimir Eyvindarson
Pepe Reina segir að stemningin í Liverpool liðinu sé gjörbreytt. Hann bindur vonir við að liðið verði styrkt í sumar og segist hlakka til næstu leiktíðar.
Mikið hefur verið rætt um að Reina kunni að vera á förum frá Liverpool, en nýlega tók hann af allan vafa um framtíð sína þegar hann lýsti því yfir að hann ætlaði sér að vera áfram í herbúðum Liverpool.
Reina lítur björtum augum á framtíðina hjá Liverpool. Hann segir að bæði John W. Henry og Damien Comolli hafi sannfært hann um að liðið yrði styrkt í sumar og nú þegar búið væri að ráða Kenny Dalglish til frambúðar væru liðinu allir vegir færir.
,,Ég vildi aldrei fara neitt, en ég verð að viðurkenna að í kringum síðustu áramót var ég mjög efins um að liðið væri nógu gott. Það gekk mjög illa hjá okkur og stemningin var alls ekki góð."
,,Mér finnst við hafa sýnt það á síðustu vikum að við erum til alls líklegir á næstu leiktíð. Andrúmsloftið er allt annað og sjálfstraustið er komið aftur. Við erum á réttri leið. Við verðum auðvitað ekki topplið á einni nóttu, en því hraðar sem við bætum okkur og því jákvæðari sem við erum í því sem við erum að gera, því betra er það fyrir félagið."
,,Ég hlakka til næstu leiktíðar. Það verður mun bjartara yfir okkur þá. Ekki síst er ég ánægður með metnað eigendanna, ég held að þeir muni láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar. Vonandi tekst þeim og stjóranum að landa leikmönnum sem gera liðið enn betra. Ég hef rætt við eigendurna og Damien Comolli og mér líst mjög vel á framtíðaráhorf félagsins."
,,Mér líður vel í Liverpool. Fjölskyldan hefur komið sér vel fyrir hérna og ég er feginn því að við erum ekki á förum. Nú reynir maður bara að gleyma leiðindunum sem einkenndu fyrri hluta leiktíðarinnar og horfa björtum augum fram á veginn", segir hinn magnaði markvörður að lokum.
TIL BAKA
Reina hlakkar til næstu leiktíðar
Pepe Reina segir að stemningin í Liverpool liðinu sé gjörbreytt. Hann bindur vonir við að liðið verði styrkt í sumar og segist hlakka til næstu leiktíðar. Mikið hefur verið rætt um að Reina kunni að vera á förum frá Liverpool, en nýlega tók hann af allan vafa um framtíð sína þegar hann lýsti því yfir að hann ætlaði sér að vera áfram í herbúðum Liverpool.
Reina lítur björtum augum á framtíðina hjá Liverpool. Hann segir að bæði John W. Henry og Damien Comolli hafi sannfært hann um að liðið yrði styrkt í sumar og nú þegar búið væri að ráða Kenny Dalglish til frambúðar væru liðinu allir vegir færir.
,,Ég vildi aldrei fara neitt, en ég verð að viðurkenna að í kringum síðustu áramót var ég mjög efins um að liðið væri nógu gott. Það gekk mjög illa hjá okkur og stemningin var alls ekki góð."
,,Mér finnst við hafa sýnt það á síðustu vikum að við erum til alls líklegir á næstu leiktíð. Andrúmsloftið er allt annað og sjálfstraustið er komið aftur. Við erum á réttri leið. Við verðum auðvitað ekki topplið á einni nóttu, en því hraðar sem við bætum okkur og því jákvæðari sem við erum í því sem við erum að gera, því betra er það fyrir félagið."
,,Ég hlakka til næstu leiktíðar. Það verður mun bjartara yfir okkur þá. Ekki síst er ég ánægður með metnað eigendanna, ég held að þeir muni láta til sín taka á leikmannamarkaðnum í sumar. Vonandi tekst þeim og stjóranum að landa leikmönnum sem gera liðið enn betra. Ég hef rætt við eigendurna og Damien Comolli og mér líst mjög vel á framtíðaráhorf félagsins."
,,Mér líður vel í Liverpool. Fjölskyldan hefur komið sér vel fyrir hérna og ég er feginn því að við erum ekki á förum. Nú reynir maður bara að gleyma leiðindunum sem einkenndu fyrri hluta leiktíðarinnar og horfa björtum augum fram á veginn", segir hinn magnaði markvörður að lokum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

