| Sf. Gutt

Andy valinn

Andy Carroll var á dögunum valinn í landsliðshóp undir 21. árs liðs Englendinga. Stuart Pearce þjálfari liðsins valdi 40 manna undirbúningshóp sem verður minnkaður þegar nær dregur úrslitakeppninni Evrópukeppni landsliða sem fer fram í Danmörku í næsta mánuði. Eins og hver maður veit þá tekur íslenska landsliðið þátt í keppninni og gæti mætt enska landsliðinu.

Ekki þótti nú öllum gott að Andy skyldi vera valinn í þennan landslðshóp enda hefur hann verið aðallandsliðsmaður upp á síðkastið, spilað tvo leiki með því og skorað eitt mark. En margir voru að vonast til þess að Andy yrði ekki valinn í þessa keppni þar sem hann hefur átt við meiðsli að stríða frá því í desember og hvíld í sumar hefði komið sér vel. 

Athygli vekur að Martin Kelly er ekki í hópnum. Hann hefur verið meiddur síðustu vikurnar og líklega er búið að afskrifa að hann verði búinn að ná sér í tæka tíð. Martin var fastamaður í liðinu.
 
Það má nefna að einn fyrrum leikmaður Liverpool er í liðinu. Um er að ræða útherjann Adam Hammill. Hann ólst upp hjá Liverpool og þótti mikið efni. Hann fór svo til Barnsley þar sem hann stóð sig mjög vel. Wolves keypti hann núna í janúar. 

Hér er liðshópurinn í heild sinni. 

Markmenn

Frankie Fielding (Blackburn Rovers), Scott Loach (Watford), Jason Steele (Middlesbrough), Alex McCarthy (Reading)

Varnarmenn

Joe Bennett (Middlesbrough), Ryan Bertrand (Chelsea), Kieran Gibbs (Arsenal), Phil Jones (Blackburn Rovers), Michael Mancienne (Wolverhampton Wanderers - í láni frá Chelsea), Ben Mee (Leicester City - í láni frá Manchester City), Kyle Naughton (Leicester City - í láni frá Tottenham), Micah Richards (Manchester City), Chris Smalling (Manchester United), James Tomkins (West Ham United), Kieran Trippier (Barnsley - í láni frá Manchester City), Kyle Walker (Aston Villa - í láni frá Tottenham Hotspur)

Miðjumenn

Marc Albrighton (Aston Villa), Jack Cork (Burnley - í láni frá Chelsea), Tom Cleverley (Wigan Athletic - í láni frá Man Utd), Mark Davies (Bolton Wanderers), Adam Hammill (Wolverhampton Wanderers), Jordan Henderson (Sunderland), Jonathan Howson (Leeds United), Adam Lallana (Southampton), Henri Lansbury (Norwich City - í láni frá Arsenal), Josh McEachran (Chelsea), Fabrice Muamba (Bolton Wanderers), Jack Rodwell (Everton), Danny Rose (Tottenham Hotspur), Scott Sinclair (Swansea City), Jack Wilshere (Arsenal)

Sóknarmenn

Andy Carroll (Liverpool), Nathan Delfouneso (Burnley - í láni frá Aston Villa), Gary Hooper (Celtic), Jay Rodriguez (Burnley), Freddie Sears (West Ham United), Daniel Sturridge (Bolton Wanderers - í láni frá Chelsea), James Vaughan (Crystal Palace - í láni frá Everton), Danny Welbeck (Sunderland - í láni frá Man Utd), Connor Wickham (Ipswich Town)

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan