| Grétar Magnússon

Fréttir af meiðslum

Glen Johnson gæti spilað gegn Newcastle um helgina og Fabio Aurelio vill ekki meina að tímabilið hjá sér sé búið.

Glen Johnson meiddist aftaní læri gegn WBA fyrir næstum því mánuði síðan og hefur hafið æfingar á fullu að nýju.  Hann vonast til þess að geta spilað gegn Newcastle á Anfield á sunnudaginn.

Fabio Aurelio, sem meiddist á svipaðan hátt og Johnson gegn Arsenal, segist hinsvegar ekki vilja viðurkenna það alveg strax að tímabilið hjá sér sé búið.  Hann vonast til þess að geta spilað gegn Fulham í London þann 9. maí eða gegn Tottenham á Anfield sex dögum síðar.

,,Ég er bjartsýnn á að ég geti spilað aftur á tímabilinu," sagði Aurelio.

,,Þetta eru sömu meiðsli og ég hlaut gegn Manchester United í mars en þetta er á öðrum stað.  Þetta er auðvitað pirrandi en ég lít á þetta þannig að Guð sé góður og ég hef trú á því að ég geti komist yfir þessi meiðsli.  Þess vegna held ég áfram að berjast við að ná mér góðum."

Aurelio hefur, eins og aðrir, verið hrifinn af framgöngu þeirra John Flanagan og Paul Robinson í bakvarðastöðunum í fjarveru hans og Glen Johnson.

,,Ég sá ekki restina af fyrri hálfleiknum geng Arsenal þar sem verið var að nudda mig vegna meiðslanna en ég sá mest allan seinni hálfleikinn og Jack virtist vera með sjálfstraustið í lagi," bætti Aurelio við.  ,,Hann sýndi hvers hann er megnugur bæði líkamlega og andlega.  Það sama má segja um John Flanagan."

,,Þeir eru mjög ungir en þeir virðast ekki finna fyrir pressunni á neinn hátt."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan