| Sf. Gutt

Mistök að fara til Liverpool!

Milan Jovanovic kom til Liverpool fyrir þetta keppnistímabil og var búist við honum sterkum. Annað hefur komið á daginn og hann hefur lítið komið við sögu og því minna sem liðið hefur á leiktíðna.

Milan segist nú sjá eftir því að hafa farið til Liverpool. Serbinn segir þó að það hafi samt ekki verið annað hægt en að taka tilboði Liverpool.

,,Liverpool er auðvitað félag sem ekki er hægt að neita. Það höfðu fimmtán önnur félög áhuga en ég valdi Liverpool og það voru mistök."

Milan Jovanovic gekk til liðs við Liverpool eftir að Rafael Benítez yfirgaf félagið en það var Spánverjinn sem lagði drög að því að fá Serbann frá Standard Liege. Roy Hodgson notaði Milan ekki mikið og Kenny Dalglish enn minna. Milan hefur trú á að því að hann hefði fengið fleiri tækifæri ef Rafa hefði verið áfram.

,,Það eina sem ég sé eftir er að þjálfarinn sem fékk mig til Anfield fór frá félaginu áður en ég kom. Ég hef þá trú að allt hefði verið öðruvísi ef Rafa Benítez hefði verið áfram hjá Liverpool."

Sumir telja að Milan hefði verðskuldað að fá fleiri tækifæri í framlínunni en hann skoraði mikið af mörkum í Belgíu. Í þeim leikjum sem hann hefur spilað með Liverpool hefur hann oftast leikið úti á vinstri kanti. Milan er búinn að spila átján leiki með Liverpool og skora tvö mörk.  





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan