| Grétar Magnússon

Tveir lánaðir

Í vikunni voru tveir leikmenn lánaðir til liða í næst efstu deild.  Dani Pacheco fór til Norwich og Brad Jones fór til Derby County.

Báðir samningarnir flokkast undir svokölluð neyðarlán en búið er að loka félagaskipta- og lánssamningaglugganum í Englandi.  Lið geta þó óskað eftir því að fá leikmenn á láni í sérstökum neyðartilfellum eins og t.d. þegar um mikil meiðsli í leikmannahópi er að ræða.

Pacheco spilar líklega sinn fyrsta leik fyrir Norwich 2. apríl næstkomandi þegar þeir mæta Scunthorpe United.  Norwich eru sem stendur í öðru sæti í 1. deildinni og eru í hörkubaráttu um að halda því sæti því það gefur beinan þátttökurétt í Úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Pacheco spilaði með spænska U-21 árs landsliðinu í vikunni þegar þeir mættu Frökkum.  Frakkar unnu leikinn 3-2 og spilaði Pacheco allan síðari hálfleikinn en náði því miður ekki að setja mark sitt á leikinn.  Spánverjar börðust hetjulega í leiknum því eftir aðeins 35 mínútur var staðan 3-0 fyrir Frakkana og Spánverjar auk þess manni færri.  Daniel Ayala, sem er á láni hjá Derby County spilaði sinn fyrsta leik fyrir U-21 árs landsliðið.

Brad Jones markvörður hefur verið lánaður til Ayala og félaga í Derby County til 7. maí.  Þessi ástralski markvörður kom til félagsins í sumar og hefur aðeins spilað tvo leiki fyrir félagið á þessu tímabili og oftar en ekki þurft að horfa á Peter Gulacsi sitja á varamannabekknum. Derby er í 17. sæti í 1. deildinni og sigla nokkuð lygnan sjó þar.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan