| Ólafur Haukur Tómasson

Kelly getur orðið einn sá besti!

Hinn tvítugi bakvörður Martin Kelly hefur heldur betur fest sig í sessi hjá Liverpool undir stjórn Kenny Dalglish og hefur spilað í níu af tíu leikjum liðsins á þeim tíma og meðal annars ýtt Glen Johnson yfir á vinstri hlið vallarins. Hann hefur fengið mikið af hrósi og var inni í myndinni hjá Fabio Capello, landsliðsþjálfara Englendinga, fyrir vináttulandsleik gegn Dönum fyrir nokkru síðan.

Martin Skrtel, sem hefur vaxið ásmeginn undir stjórn Dalglish eftir brösulega byrjun á leiktíðinni, hefur spilað í vörninni með Kelly í flest öllum þessum leikjum og er fullviss um að hann hafi það sem þarf til að ná langt í íþróttinni.

"Já, ég get séð hann fyrir mér spila með landsliðinu einhvern daginn og ég óska honum alls hins besta því hann er frábær strákur. Hann á góðan séns á að verða einn af bestu leikmönnunum í Englandi eða í Evrópu, svo ég krosslegg fingur mína fyrir hann.

Hann er enn ungur en ég er ekki hissa á þessu því ég sé hann daglega á æfingum. Hann sýnir hæfileika sína á æfingum og í leikjum. Frá því hann spilað gegn Chelsea þá hefur hann staðið sig vel og ég er ánægður fyrir hans hönd. Hann er góður gæi, góð persóna og ég get sagt það að hann er góður vinur minn," sagði Skrtel í viðtali við opinbera heimasíðu Liverpool.

Framfarir og uppganga Kelly hefur verið mjög mikil frá því hann þeytti frumraun sína í lokaleik Liverpool í riðlakeppni Meistaradeildarinnar undir lok ársins 2008 og hefur í kjölfarið leikið 26 leiki undir stjórn Rafa Benítez, Roy Hodgson og Kenny Dalglish. Á næstu vikum og mánuðum munu líklega enn fleiri leikir bætast í safnið hjá þessum bráðefnilega leikmanni.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan