| Grétar Magnússon
Í gær var tilkynnt að Jonjo Shelvey hafi meiðst á hné og verði frá í þrjá mánuði. Shelvey hefur reglulega verið á bekknum í vetur og fengið nokkur tækifæri bæði í deild og Evrópukeppni.
Shelvey átti að spila með U-19 ára liði Englendinga gegn Þýskalandi á þriðjudag en þurfti að draga sig útúr landsliðshópnum. Eftir frekari skoðun á Melwood var alvarleiki meiðslanna staðfestur.
,,Ég er frekar leiður núna en ég vonast til þess að koma sterkari til baka," sagði Shelvey.
,,Nú þarf ég að gangast undir 12 vikna endurhæfingu og vonandi kem ég fljótt til baka."
Kenny Dalglish hefur notað Shelvey mikið eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá félaginu. Dalglish notaði Shelvey sem varamann í öllum deildarleikjunum sex sem liðið hefur leikið undir hans stjórn. Shelvey kom einnig inná í FA Bikarnum gegn Manchester United á Old Trafford.
Kenny sagði þetta um unglinginn og meiðslin hans: ,,Hann hefur staðið sig svo vel þannig að þetta eru mikil vonbrigði fyrir alla."
TIL BAKA
Shelvey meiddur í þrjá mánuði
Í gær var tilkynnt að Jonjo Shelvey hafi meiðst á hné og verði frá í þrjá mánuði. Shelvey hefur reglulega verið á bekknum í vetur og fengið nokkur tækifæri bæði í deild og Evrópukeppni.Shelvey átti að spila með U-19 ára liði Englendinga gegn Þýskalandi á þriðjudag en þurfti að draga sig útúr landsliðshópnum. Eftir frekari skoðun á Melwood var alvarleiki meiðslanna staðfestur.
,,Ég er frekar leiður núna en ég vonast til þess að koma sterkari til baka," sagði Shelvey.
,,Nú þarf ég að gangast undir 12 vikna endurhæfingu og vonandi kem ég fljótt til baka."
Kenny Dalglish hefur notað Shelvey mikið eftir að hann tók við stjórnartaumunum hjá félaginu. Dalglish notaði Shelvey sem varamann í öllum deildarleikjunum sex sem liðið hefur leikið undir hans stjórn. Shelvey kom einnig inná í FA Bikarnum gegn Manchester United á Old Trafford.
Kenny sagði þetta um unglinginn og meiðslin hans: ,,Hann hefur staðið sig svo vel þannig að þetta eru mikil vonbrigði fyrir alla."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

