| Sf. Gutt

Rafa langar að stýra Liverpool aftur!

Rafael Benítez er alltaf að hugsa um Liverpool. Hann tekur það nú rólega eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá Inter Milan fyrir jólin. Rafa hefur af og til síðustu vikur fjallað um málefni Liverpool í viðtölum og núna síðast ítrekar hann að hann gæti vel hugsað sér að verða framkvæmdastjóri Liverpool á nýjan leik!

,,Ég er mjög stoltur yfir að hafa verið framkvæmdastjóri Liverpool Football Club og ég vildi gjarnan snúa aftur í framtíðinni. En maður veit ekki hvort það geti orðið því Kenny er að standa sig virkilega vel. Þetta kemur allt í ljós því maður veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. En það yrði draumur að koma aftur og myndi gleðja mig mikið."

Rafael er sem fyrr segir í fríi eftir að hann hrökklaðist úr starfi hjá heimsmeisturunum Inter Milan. Hann sagði um daginn að hann væri tilbúinn í framkvæmdastjórn á nýjan leik en hann er ekki tilbúinn í hvað sem er!

,,Stuðningsmenn Liverpool vita alveg hvaða félögum ég myndi ekki vilja stjórna og ég held reyndar að þau félög myndu aldrei bjóða mér starf. Ég er fagmaður en það eru auðvitað nokkur félög sem ég myndi aldrei fara til og þá sérstaklega helstu keppinauta Liverpool. Ég ætla ekki að nefna nein nöfn en það á ekki að vera erfitt að ímynda sér um hvað félög ég er að tala!"

Á dögunum birtist áhugavert viðtal við Rafael Benítez á vefsíðu BBC. Í því fjallaði hann um starf sitt hjá Liverpool og kom margt áhugavert fram. Hér má sjá viðtalið í heild sinni.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan