| Sf. Gutt

Pepe vill ekki gagnrýna Nando

Jose Reina telur vistaskipti Fernando Torres skiljanleg og er ekki tilbúinn að gagnrýna vin sinn fyrir að hafa yfirgefið Liverpool.
 
,,Sumir segja að hann hafi sýnt vanvirðingu en mér finnst hann hafa fórnað miklu. Hann bætti sig sem leikmaður og Liverpool varð betra lið með hann í sínum röðum. Svona ganga kaupin á eyrinni fyrir sig. Leikmenn koma og fara en það sem stendur eftir er félagið og stuðningsmennirnir.  Það er það mikilvægasta."

,,Svona er knattspyrnan og það gerist leiktíð eftir leiktíð að leikmenn komi og fari. Fernando þjónaði okkur vel þau þrjú og hálfa ár sem hann var hérna og lagði allt í sölurnar fyrir félagið. Kannski fór hann ekki á besta tíma en hann fékk tækifæri til þess að fara og hann ákvað að gera það."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan