| Sf. Gutt

Mark spáir í spilin

Fernando Torres segir að örlögin hafi gripið í taumana og því eigi hann að spila sinn fyrsta leik fyrir Chelsea gegn Liverpool. Þar var hann dýrkaður og dáður en nú telja sumir stuðningsmenn Liverpool hann til svikara. En hvernig á að flokka heimsmeistarann eftir að hann fór?

Er hann ekki bara nútímaknattspyrnumaður sem hugsar fyrst og síðast um eigin hag? Hann kom til Liverpool með það að markmiði að vinna titla og það var honum ekki búið að takast. Fernando ákvað þá að fara til Chelsea til að vinna titla. Það á eftir að koma í ljós hvort honum tekst það. Einhverjir stuðningsmenn Liverpool ákváðu að brenna Liverpool treyjur með nafni Spánverjans. Að mínu áliti er það rangt! Á þessum sömu treyjum er Liverpool merkið og allir stuðningsmenn Liverpool eiga að vita að félagið er ofar nokkrum leikmanni. Félagsmerkið er heilagt og það skulu menn aldrei vanvirða!

 

                                                                           Chelsea v Liverpool

Mér finnst þetta stórleikur fyrir margra hluta sakir. Bæði liði hafa verið að braggast síðustu vikur og verið að vinna leiki. Það verður áhugavert að sjá hvernig Chelsea mun spila með Fernando Torres í liðinu. Ég tel að þeir verði að láta Fernando spila í miðri framlínunni. Ég trúi ekki öðru en að Carlo Ancelotti, stjóri þeirra Bláu, láti hann spila sína bestu stöðu eftir að hafa borgað 50 milljónir punda fyrir hann.
 
Liverpool hefur verið að bæta sig og er á góðu skriði undir stjórn Kenny Dalglish. Liðið á þó mikið verk óunnið. Það hafa miklar breytingar orðið hjá félaginu með viðskiptunum sem áttu sér stað áður en lokað var félagskipti. Þau viðskipti komu vel út því þó svo að há upphæð hafi verið borguð fyrir Andy Carroll þá var vel hægt að borga hana því mikið kom í kassann þegar Fernando var seldur. 

Chelsea er á heimavelli og það ætti að skila þeim sigri. Liverpool vann nokkuð auðveldan sigur á þeim á Anfield í nóvember og ég held að Chelsea muni hafa mikinn hug á að hefna fyrir þau úrslit.

Spá: 2:0.

                                                                                   Til minnis!
 
- Liverpool hefur ekki verið ofar í deildinni á þessu keppnistímabili. Liðið er nú í sjöunda sæti.

- Liverpool vann fyrri leik liðanna á Anfield 2:0.

- Fernando Torres skoraði bæði mörkin!

- Fernando gekk jafnan vel gegn Chelsea á ferli sínum með Liverpool og skoraði sjö mörk í átta leikjum.

- Fernando Torres er markahæsti leikmaður Liverpool hingað til á leiktíðinni með níu mörk.

- Bæði lið hafa unnið þrjá síðustu deildarleiki sína.

                                                                                    Síðast!



Liverpool lenti í erfiðleikum á Stamford Bridge eins og oft áður og tapaði 2:0. Þeir Didier Drogba og Nicolas Anelka skoruðu mörkin ef minnið bregst ekki. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan