| Grétar Magnússon
Kenny Dalglish viðurkennir að Ferndando Torres hafi valdið sér vonbrigðum eftir að hafa beðið um sölu til Chelsea en hann segir að félagið hafi haldið áfram eftir sölu hans.
Skömmu eftir að Torres skrifaði undir hjá Chelsea sagðist hann hafa gengið til liðs við félag sem uppfyllti allar hans kröfur, Dalglish segir slík ummæli ekki hafa hallað á Liverpool. Dalglish segir að John Henry og Tom Werner hafi reynt að sannfæra Spánverjann um að vera áfram en án árangurs.
,,Ég veit ekki hvað hann hefur sagt eftir að hann gekk til liðs við Chelsea - ég veit bara hvað hann sagði þegar hann var leikmaður hér," sagði Dalglish. ,,Allir voru vonsviknir með að hann skyldi hafa farið en verst fannst mér tímasetningin hans en við verðum að halda áfram og félagið sjálft verður alltaf hér."
,,Við munum aldrei setja einhvern einn mann framar félaginu. Eigendurnir gerðu allt sem þeir gátu en þeir gátu engu breytt. Hann (Torres) flutti sig um set og spilar fyrir annað félag núna."
,,Þetta er eitthvað sem við verðum að búa við og það mikilvægasta fyrir okkur nú eru þessir tveir menn sem við fengum inn og við einbeitum okkur að þeim - við erum hæstánægðir með þá."
,,Ef við höfum misst einn leikmann, þá er það bara þannig. Ég veit ekki hver græðir á þessu og það mun enginn geta sagt til um það fyrr en eftir nokkur ár. Mikilvægasta fólkið er fólkið hjá félaginu sem er annt um það; hvað svo sem Chelsea finnst um það þá er það ekki mitt vandamál."
Liverpool og Chelsea mætast nú á sunnudag og er næsta víst að Torres muni spila þar gegn sínum gömlu félögum.
,,Við erum mikilvægari en hvaða leikmaður sem er hjá þeim. Við spilum á móti þeim leikmönnum sem þeir setja út á völlinn," bætti Dalglish við.
,,Það vita allir að félagið sjálft er mikilvægara en einhver einstaklingur, hvort sem hann er farinn eða er hér enn. Ég býst við því að mínir leikmenn séu klárir í það að kljást við Torres en þeir hafa staðið sig frábærlega gegn hvaða leikmanni sem er síðan ég kom hingað. Ef okkar leikmenn eru einbeittir þá verða engin vandamál og þetta kryddar tilveruna ekkert sérstaklega fyrir mig."
TIL BAKA
Kenny vonsvikinn með Torres
Kenny Dalglish viðurkennir að Ferndando Torres hafi valdið sér vonbrigðum eftir að hafa beðið um sölu til Chelsea en hann segir að félagið hafi haldið áfram eftir sölu hans.Skömmu eftir að Torres skrifaði undir hjá Chelsea sagðist hann hafa gengið til liðs við félag sem uppfyllti allar hans kröfur, Dalglish segir slík ummæli ekki hafa hallað á Liverpool. Dalglish segir að John Henry og Tom Werner hafi reynt að sannfæra Spánverjann um að vera áfram en án árangurs.
,,Ég veit ekki hvað hann hefur sagt eftir að hann gekk til liðs við Chelsea - ég veit bara hvað hann sagði þegar hann var leikmaður hér," sagði Dalglish. ,,Allir voru vonsviknir með að hann skyldi hafa farið en verst fannst mér tímasetningin hans en við verðum að halda áfram og félagið sjálft verður alltaf hér."
,,Við munum aldrei setja einhvern einn mann framar félaginu. Eigendurnir gerðu allt sem þeir gátu en þeir gátu engu breytt. Hann (Torres) flutti sig um set og spilar fyrir annað félag núna."
,,Þetta er eitthvað sem við verðum að búa við og það mikilvægasta fyrir okkur nú eru þessir tveir menn sem við fengum inn og við einbeitum okkur að þeim - við erum hæstánægðir með þá."
,,Ef við höfum misst einn leikmann, þá er það bara þannig. Ég veit ekki hver græðir á þessu og það mun enginn geta sagt til um það fyrr en eftir nokkur ár. Mikilvægasta fólkið er fólkið hjá félaginu sem er annt um það; hvað svo sem Chelsea finnst um það þá er það ekki mitt vandamál."
Liverpool og Chelsea mætast nú á sunnudag og er næsta víst að Torres muni spila þar gegn sínum gömlu félögum.
,,Við erum mikilvægari en hvaða leikmaður sem er hjá þeim. Við spilum á móti þeim leikmönnum sem þeir setja út á völlinn," bætti Dalglish við.
,,Það vita allir að félagið sjálft er mikilvægara en einhver einstaklingur, hvort sem hann er farinn eða er hér enn. Ég býst við því að mínir leikmenn séu klárir í það að kljást við Torres en þeir hafa staðið sig frábærlega gegn hvaða leikmanni sem er síðan ég kom hingað. Ef okkar leikmenn eru einbeittir þá verða engin vandamál og þetta kryddar tilveruna ekkert sérstaklega fyrir mig."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

