| Sf. Gutt

Guðlaugur Victor á förum?

Guðlaugur Victor Pálsson telur líklegt að hann yfirgefi Liverpool fyrr en seinna. Samningur hans við Liverpool rennur út í sumar. Guðlaugur ræddi framtíð sína í útvarpsþætti vefsíðunnar Fótbolta.net um síðustu helgi. Hann sagði þar meðal annars þetta. 

,,Ég held að það sé alveg ljóst að ég mun fara frá Liverpool í þessum glugga eða næsta glugga. Það eru viðræður í gangi við einhver lið og ég ætla að sjá hvað gerist. Ég fór á fund með stjórn Liverpool eftir að ég kom aftur úr láni og þeir sögðu að ég mætti vera hér og spila með varaliðinu og æfa með aðalliðinu. Samningurinn minn er búinn í sumar og ég reikna ekki með að fá annan samning þannig að ég ætla að sjá hvort að ég geti ekki fundið góðan klúbb núna í janúar. Ég vil spila aðalliðsfótbolta á hærra leveli."

,,Þetta eru búin að vera frábær tvö ár hérna. Ég hef meira og minna náð öllum þeim markmiðum sem ég setti mér. Þó að þessi tími endi núna í janúar eða í sumar þá á ég aldrei eftir að sjá eftir að hafa farið hingað. Ég er orðinn miklu betri fótboltamaður eftir að hafa verið hérna og þetta hafa bara verið jákvæðir tímar."

Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Guðlaug í heild sinni.
 
Í dag birtist stutt viðtal við Guðlaug Victor á Liverpoolfc.tv. Þar leggur hann áherslu á að hann þurfi að reyna að sanna sig því að samningur hans rennur út í sumar. Hann sagði meðal annars þetta í viðtalinu.

,,Samningur minn rennur út í lok leiktíðar og núna þarf ég að reyna að sanna mig. Lánstíminn hjá Dagenham gekk vel en kannski lék ég ekki jafn marga leiki og ég hefði viljað. Ég lék fjóra af átta leikjum og æfði með aðalliðinu á hverjum degi í tvo mánuði. Það kom mér vel."



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan