| Sf. Gutt
Þrír af lánsmönnum Liverpool eru komnir aftur heim eftir að lánstími þeirra rann út núna um áramótin. Þetta eru þeir Tom Ince, Stephen Darby og Guðlaugur Victor Pálsson. Þeir Tom og Stephen voru í láni hjá Notts County en Guðlaugur var hjá Dagenham & Redbridge.
Þeir léku allir með í æfingaleik sem varalið Liverpool lék núna á þriðjudaginn. Liverpool vann Sunderland 2:1 með mörkum Daniel Pacheco og Nicola Saric. Guðlaugur kom inn á sem varamaður í leiknum. Þess má geta að Jay Spearing lék sinn fyrsta leik eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðustu vikurnar.
Tom, sem er hér á mynd, þótti standa sig mjög vel hjá Notts County og Paul pabbi hans, sem er stjóri County, vildi fá lánstíma hans framlengdan til vors. Ekki náðist samkomulag um það. Tom, sem þykir mjög efnilegur vinstri kantmaður, hefur leikið einn leik með aðalliði Liverpool. Kannski væri ekki vitlaust að reyna hann í aðalliðinu en þar er ekki um auðugan garð í grisja hvað útherja varðar.
TIL BAKA
Lánsmenn komnir heim
Þrír af lánsmönnum Liverpool eru komnir aftur heim eftir að lánstími þeirra rann út núna um áramótin. Þetta eru þeir Tom Ince, Stephen Darby og Guðlaugur Victor Pálsson. Þeir Tom og Stephen voru í láni hjá Notts County en Guðlaugur var hjá Dagenham & Redbridge. Þeir léku allir með í æfingaleik sem varalið Liverpool lék núna á þriðjudaginn. Liverpool vann Sunderland 2:1 með mörkum Daniel Pacheco og Nicola Saric. Guðlaugur kom inn á sem varamaður í leiknum. Þess má geta að Jay Spearing lék sinn fyrsta leik eftir að hafa verið frá vegna meiðsla síðustu vikurnar.
Tom, sem er hér á mynd, þótti standa sig mjög vel hjá Notts County og Paul pabbi hans, sem er stjóri County, vildi fá lánstíma hans framlengdan til vors. Ekki náðist samkomulag um það. Tom, sem þykir mjög efnilegur vinstri kantmaður, hefur leikið einn leik með aðalliði Liverpool. Kannski væri ekki vitlaust að reyna hann í aðalliðinu en þar er ekki um auðugan garð í grisja hvað útherja varðar.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

