| Grétar Magnússon
Nathan Eccleston hefur verið lánaður til Charlton Athletic til loka tímabilsins. Hann hefur fengið tækifæri með aðalliðinu á tímabilinu og var í fyrsta sinn í byrjunarliði í Evrópuleiknum gegn Utrecht í desember. Alls hefur hann leikið níu leiki með Liverpool.
Hann er byrjaður að æfa með Charlton en hans fyrsta æfing var í gær. Gengið var frá pappírunum í dag og vonast Eccleston til að spila sinn fyrsta leik á laugardaginn gegn Sheffield Wednesday. Eccleston var á láni hjá Huddersfield á síðasta tímabili. Charlton menn eru hæstánægðir með að hafa klófest kappann á lánssamningi.
Stjórnarformaður félagsins, Michael Slater sagði: ,,Nokkur félög vildu fá Nathan á láni í félagaskiptaglugganum og flest félögin voru deild ofar en við. Við þurftum því að flýta okkur í þessu máli og erum mjög ánægðir með að hafa fengið hann til okkar."
,,Hann er mjög hátt skrifaður og verður frábær viðbót við leikmannahóp okkar."
Charlton er sem stendur í League One en það er gamla þriðja deildin. Þeir eru í sjötta sæti deildarinnar og í hörku baráttu um að komast upp um deild eða að minnsta kosti í umspil í vor.
TIL BAKA
Eccleston lánaður
Nathan Eccleston hefur verið lánaður til Charlton Athletic til loka tímabilsins. Hann hefur fengið tækifæri með aðalliðinu á tímabilinu og var í fyrsta sinn í byrjunarliði í Evrópuleiknum gegn Utrecht í desember. Alls hefur hann leikið níu leiki með Liverpool. Hann er byrjaður að æfa með Charlton en hans fyrsta æfing var í gær. Gengið var frá pappírunum í dag og vonast Eccleston til að spila sinn fyrsta leik á laugardaginn gegn Sheffield Wednesday. Eccleston var á láni hjá Huddersfield á síðasta tímabili. Charlton menn eru hæstánægðir með að hafa klófest kappann á lánssamningi.
Stjórnarformaður félagsins, Michael Slater sagði: ,,Nokkur félög vildu fá Nathan á láni í félagaskiptaglugganum og flest félögin voru deild ofar en við. Við þurftum því að flýta okkur í þessu máli og erum mjög ánægðir með að hafa fengið hann til okkar."
,,Hann er mjög hátt skrifaður og verður frábær viðbót við leikmannahóp okkar."
Charlton er sem stendur í League One en það er gamla þriðja deildin. Þeir eru í sjötta sæti deildarinnar og í hörku baráttu um að komast upp um deild eða að minnsta kosti í umspil í vor.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

