| Sf. Gutt

Brottrekstur staðfestur!

Í dag var tilkynnt á vefsíðu Inter Milan að Rafael Benítez hafi látið af störfum sem framkvæmdastjóri félagsins. Á vefsíðunni voru Rafael þökkuð vel unnin störf og hann sjálfur þakkaði fyrir sig. Í gærkvöldi greindu margir fjölmiðlar frá því að Rafael hefði verið rekinn og núna er komin opinber staðfesting á því.
 
Rafael Benítez gerði starfslokasamning við Liverpool í byrjun júní og tók stuttu síðar við stjórn þrefaldra meistara Inter Milan. Rafa bætti ítölsku meistarakeppninni og Heimsmeistaratitli félagsliða í titlasafn Inter, fyrir árið 2010, en þrátt fyrir það hefur hann nú vikið úr starfi. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan