| Heimir Eyvindarson

Benítez rekinn frá Inter!

Breskir netmiðlar greina frá því í kvöld að Rafa Benítez hafi verið látinn taka pokann sinn hjá Inter Milan, eftir aðeins sex mánuði í starfi.

Inter Milan hefur ekki staðfest brotthvarf Benítez, en Sky Sports og fleiri miðlar í áreiðanlegri kantinum fullyrða að tilkynnt verði um starfslok Rafa í fyrramálið. Daily Mirror segir að Brasilíumaðurinn Leonardo muni taka við Benítez, að minnsta kosti tímabundið.

Gengi Inter hefur verið afleitt í vetur. Liðið hefur einungis unnið sex af 15 leikjum sínum í ítölsku deildinni og er sem stendur í 7. sæti deildarinnar, heilum 13 stigum á eftir nágrönnunum og erkifjendunum í AC Milan. Það er kaldhæðnisleg tilviljun að Liverpool var einmitt í 7. sæti ensku deildarinnar þegar Benítez var látinn taka pokann sinn þar á bæ.

Talið er að kornið sem fyllti mælinn hafi verið harkaleg gagnrýni Benítez á Massimo Moratti forseta Inter eftir sigur félagsins í heimsmeistarakeppni félagsliða um helgina, en Benítez hefur verið óánægður með að fá ekki að kaupa fleiri leikmenn. Meðal leikmanna sem hann hefur borið víurnar í frá því hann kom til Inter má nefna Dirk Kuyt, Javier Mascherano og Lucas Leiva.

Benítez og fjölskylda eru komin til Englands og munu ætla að eyða jólunum á Merseyside, í húsi fjölskyldunnar í Wirral. Benítez vildi ekkert tjá sig við blaðamenn sem biðu fyrir utan húsið í kvöld, en bauð þeim þess í stað upp á tesopa að breskum hætti.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan