| Sf. Gutt

Mögnuð byrjun!

Það gerist ekki oft að leikmaður skori í sínum fyrsta landsleik. Hvað þá þegar um varnarmann er að ræða. Þetta gerði þó Danny Wilson um daginn þegar hann lék sinn fyrsta landsleik með skoska landsliðinu.

Skotar mættu frændum okkar frá Færeyjum og unnu 3:0. Danny Wilson skoraði fyrsta markið með snaggaralegu skoti eftir hornspyrnu á 24. mínútu. Hann gerði það svo ekki endasleppt því hann lagði upp síðasta mark leiksins fyrir Jamie Mackie! Kris Commons skoraði mark númer tvö. 

,,Það var rosalega gaman að spila fyrsta landsleikinn. Ég átti ekki von á því að vera í byrjunarliðinu þegar liðshópurinn var tilkynntur. En það var nokkuð um forföll og þess vegna fékk ég tækifærið."

,,Þegar ég skoraði markið náði ég að skapa mér svolítið pláss. Boltinn kom svo á hægri fótinn sem hefur reyndar ekki verið sá betri en mér tókst að skora."

Það er ekki nema eitt ár frá því að Danny komst í aðallið Rangers og nú er hann kominn til Liverpool og búinn að leika með aðallandsliði Skotlands.

,,Fyrir ári var ég nýbyrjaður að leika með Rangers. Nokkrum mánuðum áður var ég svo að spila með varaliðinu þar. Ég hefði aldrei trúað því að rúmu ári seinna væri ég búinn að leika með aðalliði landsliðsins og skora í mínum fyrsta landsleik. Ég er að upplifa draum og ég vil ekki að hann taki enda."

Hér eru myndir úr leiknum af vefsíðu BBC.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan