| Sf. Gutt

Guðlaugur kominn með þrjá leiki

Guðlaugur Victor Pálsson er búinn að spila þrjá leiki eftir að hann fór í lán til Dagenham & Redbridge. Í gærkvöldi var hann í liðinu í útileik gegn Plymouth. Í liði heimamanna var líka fulltrúi frá Íslandi. Það var Kári Árnason og léku báðir leikinn frá upphafi til enda. 

Guðlaugur lék sinn fyrsta leik með Dagenham í F.A. bikarnum gegn Leyton Oriant. Þeim leik lauk með jafntefli 1:1 en Oriant vann aukaleikinn sem fór fram í síðustu viku. Guðlaugur lék ekki þann leik.

Liverpool lánaði Guðlaug til Dagenham fram yfir áramót. Þess má til gamans geta að í leikskrá Liverpool er fylgst með Guðlaugi. Í leikskránni sem var gefin úr fyrir leikinn gegn West Ham United, núna um helgina, var Guðlaugur kominn með tvo skráða leiki á ferilskrá sína.

Leikirnir sem Guðlaugur Victor er búinn að spila með Dagenham eru fyrstu leikirnir sem hann hefur leikið með aðalliði á ferlinum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan