| Grétar Magnússon
Þeir Fernando Torres, Glen Johnson, Martin Skrtel og Dirk Kuyt eru allir heilir heilsu og geta spilað gegn West Ham um helgina.
Þeir Dirk Kuyt og Martin Skrtel þurftu að draga sig út úr landsliðshópum sínum fyrir landsleiki vikunnar, Kuyt vegna ökklameiðsla og Skrtel vegna meiðsla á ökkla og hné.
Fernando Torres, sem spilaði allan síðari hálfleikinn í niðurlægjandi tapi Spánverja gegn Portúgölum kennir sér ekki meins í ökklanum eftir að hafa spilað þann leik en hann þótti tæpur eftir tapleikinn gegn Stoke um síðustu helgi.
Glen Johnson gæti svo einnig verið tiltækur en hann er byrjaður að æfa að fullu eftir sín meiðsli.
Dr. Peter Brukner sagði í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins: ,,Fernando meiddist á ökkla gegn Stoke. Við skoðuðum hann og okkur fannst þetta ekki líta illa út, þannig að okkur fannst í lagi að hann myndi fara til að hitta landsliðshóp Spánverja. Við erum í góðu sambandi við læknalið Spánverja. Þeir skoðuðu hann og hann var dag eða tvo í góðri meðferð og æfði ekkert. Þeim fannst svo í lagi að hann myndi spila í 45 mínútur (gegn Portúgal) og hann kenndi sér ekki meins eftir það. Við búumst ekki við öðru en að hann geti spilað um helgina."
,,Dirk er að jafna sig eftir ansi erfið ökklameiðsli. Við vorum ánægðir með að fá hann til baka eftir aðeins 3 vikur en eftir að hafa spilað 3 leiki á einni viku var ökklinn aðeins sár. Við ræddum þetta við Dirk og hollenska liðið og vorum sammála um það að það væri ekki góð hugmynd að hann myndi spila, þannig að hann tók ekki þátt í leik Hollendinga."
,,Martin fékk högg á sig gegn Stoke sem leit ekki svo illa út en það var engu að síður ekki góð hugmynd að hann færi að ferðast til að spila vináttuleik. En allir þessir þrír leikmenn eru klárir fyrir leikinn gegn West Ham."
,,Glen ætti líka að geta spilað. Hann hefur æft alla vikuna á Melwood og hann er tilbúinn."
Tveir leikmenn eru þó enn á meiðslalistanum, þeir Joe Cole og Daniel Agger, þó að sá fyrrnefndi gæti verið búinn að ná sér í tæka tíð fyrir leikinn gegn Tottenham eftir rúmlega viku.
,,Joe mun þurfa aðra viku til að jafna sig," sagði Dr. Brukner. ,,Hann er næstum tilbúinn en vöðvinn aftan í lærinu hefur ekki verið eins fljótur að jafna sig og við vonuðumst til. Hann mun byrja að æfa að fullu í næstu viku og við gerum ráð fyrir því að hann verði klár fyrir leikinn við Tottenham á sunnudaginn eftir viku"
Brukner bætti við: ,,Meiðsli Daniel's eru óvenjuleg. Í síðasta landsleikjahlé fékk hann spark í kálfann. Stundum þegar það gerist þá verður einhverskonar kalkmyndun og því miður í hans tilfelli þá varð raunin sú nú. Þetta hefur tekið mun lengri tíma en maður hefði haldið en svona kalkmyndun þarf mánuð til að jafna sig."
,,Hann mun því líklega ekki spila aftur fyrr en eftir þrjár til fjórar vikur. Þetta er virkilega svekkjandi og pirrandi en það er ekkert sem við getum gert. Tíminn læknar svona meiðsli og við verðum að vera þolinmóðir með hann."
Eins sagt var svo frá fyrr í dag verður Steven Gerrard svo frá í þrjár til fjórar vikur eftir að hafa meiðst í landsleik með Englendingum.
TIL BAKA
Góðar fréttir af meiðslum
Þeir Fernando Torres, Glen Johnson, Martin Skrtel og Dirk Kuyt eru allir heilir heilsu og geta spilað gegn West Ham um helgina.Þeir Dirk Kuyt og Martin Skrtel þurftu að draga sig út úr landsliðshópum sínum fyrir landsleiki vikunnar, Kuyt vegna ökklameiðsla og Skrtel vegna meiðsla á ökkla og hné.
Fernando Torres, sem spilaði allan síðari hálfleikinn í niðurlægjandi tapi Spánverja gegn Portúgölum kennir sér ekki meins í ökklanum eftir að hafa spilað þann leik en hann þótti tæpur eftir tapleikinn gegn Stoke um síðustu helgi.
Glen Johnson gæti svo einnig verið tiltækur en hann er byrjaður að æfa að fullu eftir sín meiðsli.
Dr. Peter Brukner sagði í viðtali við opinbera heimasíðu félagsins: ,,Fernando meiddist á ökkla gegn Stoke. Við skoðuðum hann og okkur fannst þetta ekki líta illa út, þannig að okkur fannst í lagi að hann myndi fara til að hitta landsliðshóp Spánverja. Við erum í góðu sambandi við læknalið Spánverja. Þeir skoðuðu hann og hann var dag eða tvo í góðri meðferð og æfði ekkert. Þeim fannst svo í lagi að hann myndi spila í 45 mínútur (gegn Portúgal) og hann kenndi sér ekki meins eftir það. Við búumst ekki við öðru en að hann geti spilað um helgina."
,,Dirk er að jafna sig eftir ansi erfið ökklameiðsli. Við vorum ánægðir með að fá hann til baka eftir aðeins 3 vikur en eftir að hafa spilað 3 leiki á einni viku var ökklinn aðeins sár. Við ræddum þetta við Dirk og hollenska liðið og vorum sammála um það að það væri ekki góð hugmynd að hann myndi spila, þannig að hann tók ekki þátt í leik Hollendinga."
,,Martin fékk högg á sig gegn Stoke sem leit ekki svo illa út en það var engu að síður ekki góð hugmynd að hann færi að ferðast til að spila vináttuleik. En allir þessir þrír leikmenn eru klárir fyrir leikinn gegn West Ham."
,,Glen ætti líka að geta spilað. Hann hefur æft alla vikuna á Melwood og hann er tilbúinn."
Tveir leikmenn eru þó enn á meiðslalistanum, þeir Joe Cole og Daniel Agger, þó að sá fyrrnefndi gæti verið búinn að ná sér í tæka tíð fyrir leikinn gegn Tottenham eftir rúmlega viku.
,,Joe mun þurfa aðra viku til að jafna sig," sagði Dr. Brukner. ,,Hann er næstum tilbúinn en vöðvinn aftan í lærinu hefur ekki verið eins fljótur að jafna sig og við vonuðumst til. Hann mun byrja að æfa að fullu í næstu viku og við gerum ráð fyrir því að hann verði klár fyrir leikinn við Tottenham á sunnudaginn eftir viku"
Brukner bætti við: ,,Meiðsli Daniel's eru óvenjuleg. Í síðasta landsleikjahlé fékk hann spark í kálfann. Stundum þegar það gerist þá verður einhverskonar kalkmyndun og því miður í hans tilfelli þá varð raunin sú nú. Þetta hefur tekið mun lengri tíma en maður hefði haldið en svona kalkmyndun þarf mánuð til að jafna sig."
,,Hann mun því líklega ekki spila aftur fyrr en eftir þrjár til fjórar vikur. Þetta er virkilega svekkjandi og pirrandi en það er ekkert sem við getum gert. Tíminn læknar svona meiðsli og við verðum að vera þolinmóðir með hann."
Eins sagt var svo frá fyrr í dag verður Steven Gerrard svo frá í þrjár til fjórar vikur eftir að hafa meiðst í landsleik með Englendingum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

