| Grétar Magnússon

Landsleikjafréttir

Margir vináttulandsleikir fóru fram í vikunni og voru nokkrir leikmenn Liverpool að leika með landsliðum sínum.  Þar ber hæst að Danny Wilson skoraði í sínum fyrsta landsleik fyrir Skota.

Skotar sigruðu frændur okkar Færeyinga á heimavelli 3-0 og skoraði Wilson fyrsta mark leiksins í sínum fyrsta landsleik.  Hann þrumaði boltanum í markið eftir hornspyrnu á 24. mínútu.  Wilson var svo skipt útaf eftir um 60 mínútna leik.

Steven Gerrard fór meiddur af velli á 84. mínútu þegar Englendingar töpuðu gegn Frökkum á Wembley 2-1.  Samkvæmt samkomulagi átti Gerrard aðeins að spila í 60 mínútur og eru margir í þjálfara- og læknaliði Liverpool ansi reiðir yfir þessum svikum.  Það kemur í ljós í dag hvort að Gerrard geti verið með gegn West Ham á laugardaginn en það verður að teljast ólíklegt þar sem hann er meiddur aftan í læri og þannig meiðsli krefjast oftast einhverra daga hvíldar. Steven þótti, af mörgum, vera besti leikmaður enska liðsins sem hafði lítið í Frakka að gera.

Peter Crouch, fyrrum leikmaður Liverpool, skoraði mark Englands undir lok leiksins. Þetta var 22. landsliðsmark hans í 42 leikjum. Peter kom inn á sem varamaður fyrir Steven.

Spánverjar og Portúgalar mættust í nágrannaslag þar sem Portúgalir sigruðu Heims- og Evrópumeistarana 4-0 !  Fernando Torres spilaði allan síðari hálfleikinn og Raul Meireles spilaði allar 90 mínúturnar.  Staðan á Fernando Torres verður einnig metin þegar hann kemur til baka á Melwood í dag hvort rétt sé að nota hann gegn West Ham.

Lucas spilaði með Brasilíumönnum er þeir töpuðu 1-0 fyrir Argentínu, Christian Poulsen spilaði í 69 mínútur þegar Danir gerðu 0-0 jafntefli gegn Tékklandi og Ryan Babel fékk svo að spila síðustu mínúturnar með Hollandi þegar þeir unnu Tyrki 1-0 á heimavelli.

Nabil El Zhar kom inn á sem varamaður í liði Marokkó sem gerði 1:1 jafntefli við Norður Íra í Belfast.

Nokkrir leikmenn sem leika með vara- og unglingaliðum félagsins voru einnig á ferðinni í vikunni.  Conor Coady var fyrirliði U18 ára landsliðs Englendinga sem unnu Pólverja 3-0, Jack Robinson spilaði allan síðari hálfleikinn.

Martin Kelly spilaði svo með U21 árs landsliði Englands sem tapaði 2-0 gegn Þjóðverjum, honum var skipt útaf eftir 77 mínútur.

Þess má að lokum geta að þeir Dirk Kuyt og Martin Skrtel drógu sig út úr landsliðshópum sínum vegna meiðsla og eru þeir tæpir fyrir leikinn á laugardaginn.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan